10. tbl. 104. árg. 2018

Umræða og fréttir

Frá öldungadeild LÍ. Ferð um Gullna söguhringinn í Dölum. Kristófer Þorleifsson

                                       
                                       Hlýtt á Gísla á Vatni segja frá. Svavar Gestsson leiðsögumaður
                                       lengst til hægri.

Haldið var af stað frá Hlíðasmára 8, kl 9 árdegis og stefnan sett vestur í Dali. Alls voru í förinni 32 í byrjun auk bílstjóra, en síðan bættust fimm við þegar komið var vestur í Miðdali, leiðsögumaðurinn Svavar Gestsson fyrrv. ráðherra og sendiherra og tveir kollegar frá Akureyri ásamt mökum. Ekið var upp í Borgarnes þar sem áð var í skamma stund, en síðan ekið upp Norðurárdal og Bröttubrekku niður í Miðdali. Á Erpsstöðum kom Svavar í bílinn og þeir norðanmenn og stefnan síðan sett inn Haukadal til Eiríksstaða. Á leiðinni fræddi leiðsögumaður okkur um það sem fyrir augun bar, um merka staði og atburði sem fram koma ýmist í Laxdælu eða Sturlungu. Ekið var fram hjá Sauðafelli en þar bjó Sturla Sighvatsson og þar handtók Daði Guðmundsson í Snóksdal Jón biskup Arason og syni hans og flutti til Skálholts þar sem þeir voru hálshöggnir 7. nóvember árið 1550. Á Kvennabrekku í Miðdölum fæddist Árni Magnússon handritasafnari og prófessor.

                                       
                                                                     Við altarisbríkina í Skarðskirkju.

Ekið var síðan inn allan Haukadal inn að Stóra-Vatnshorni til að skoða og fræðast um tilgátubæinn Eiríksstaði, sem vígður var árið 2000. Þar fræddi Gísli bóndi á Vatni, klæddur að fornmannasið, hópinn um bæinn og vitnaði í Landnámu og sögu Eiríks rauða.

                                        
                                                               Hópurinn fyrir framan skólahúsið í Ólafsdal.

Frá Eiríksstöðum var haldið í Búðardal og snæddur þar hádegisverður í Dalakoti, dýrindis kjúklingasúpa. Ekið var um Búðardal og greindi Svavar frá væntanlegu Vínlandssetri sem ætlunin er að opna á næsta ári.

Síðan var ekið inn Laxárdal að Hjarðarholti þar sem Ólafur Pá, sonur Höskuldar Dalakollssonar og ambáttarinnar Melkorku, reisti sér bæ. Kirkja þar var vígð 1904, krosskirkja teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni arkitekt. Í kirkjunni fræddi sóknarpresturinn, sr. Anna Eiríksdóttir, okkur um sögu kirkjunnar og þá sérlega byggingarsögu hennar. Frá Hjarðarholti var síðan horft yfir dalinn og yfir til Höskuldsstaða þar sem Höskuldur Dalakollsson bjó. Í dag er aðeins einn prestur í Dalabyggð en sex kirkjur.

                                         
                                                           Hjarðarholtskirkja. Myndirnar tók Kristófer.    

Eftir kirkjuskoðun var ekið að Laugum í Sælingsdal þar sem byggðasafnið var skoðað og svo var snæddur glæsilegur kvöldverður að Hótel Laugum. Undir borðhaldi tóku ýmsir til máls og kastað var fram vísum og fluttur ljóðabálkur sem fjallaði um fyrri ferðir öldunga. Gist var að Laugum og áfram haldið snemma næsta morgun eftir morgunverð og skoðun á Guðrúnarlaug þar sem Guðrún Ósvífursdóttir sat löngum á síðkvöldum milli þeirra Kjartans Ólafssonar og Bolla Þorleikssonar.

Síðan var ferðalaginu haldið áfram um Hvammssveit og út Fellsströndina. Horft var heim að Hvammi en þar bjó Auður djúpúðga og síðan Hvamm-Sturla Þórðarson og þar fæddist Snorri Sturluson.

Gengið var á Krosshólaborg, en þangað fór Auður djúpúðga til bænahalds. Á Krosshólaborg lét Auður reisa kross að sögn Landnámabókar, og til minningar um það var reistur steinkross á borginni árið 1965.

Næst var ekið  að Staðarfelli og gengið þar í kirkju. Þar sagði Svavar sögu staðarins og kirkjunnar með dyggri aðstoð Sveins bróður síns, sem í áratugi hefur verið staðarhaldari þar og bóndi. Á Staðarfelli var rekin húsmæðraskóli frá 1927 til 1976 og endurhæfingarstöð á vegum SÁÁ síðan, allt fram á þetta ár. Frá Staðarfelli var ekið að Vogi sem Bjarni Jónsson alþingismaður, skáld og rithöf-undur er kenndur við. Þar var snædd súpa og brauð. Eftir máltíðina opnaði formaður bar í farangursrými rútunnar og bauð upp á rautt, hvítt og bjór. Runnu þær veitingar ljúflega niður, en allt var það í hófi og engan þurfti að flytja frá Vogi til baka á Staðarfell.

Frá Vogi var haldið áfram út Fellsströnd og staðnæmst við Klofning, sem skilur að Fellsströnd og Skarðsströnd. Hluti hópsins gekk upp á Klofning, en þaðan er útsýni gott yfir Breiðafjörð, Breiðafjarðareyjar og Snæfellsnes. Margir hólmar og eyjar út af Fellsströnd hýsa arnarhreiður.

Eftir Klofning var haldið áfram inn Skarðsströnd og heim að Skarði og kirkjan skoðuð undir leiðsögn húsfreyjunnar á Skarði. Ekkert býli eða jörð hefur jafnlengi verið í eigu sömu ættar á Íslandi, eða frá því um árið 1100. Landnámabók segir frá því að Geirmundur heljarskinn Hjörsson (Svarti víkingurinn) hafi búið á Geirmundarstöðum undir Skarði. Margt stórmenna hefur búið á Skarði. Þar bjó Björn Þorleifsson hirðstjóri (1408-1467), sem Englendingar drápu á Rifi á Snæfellsnesi. Ekkja hans, Ólöf ríka Loftsdóttir, lét hefna hans og lét drepa fjölda Englendinga, aðra lét hún taka til fanga og flutti heim að Skarði og notaði sem þræla. Í Skarðskirkju er margt fallegra og merkilegra gripa, meðal annars altarisbrík með alabastursmyndum frá 15. öld og herma munnmæli að Ólöf ríka hafi gefið kirkjunni bríkina.

Eftir kirkjuskoðun á Skarði var ekið niður að Skarðsstöð, þar sem í dag er smábátahöfn. Boðið var þar upp á úr farangursgeymslu bifreiðarinnar kaffi og heimabakaðar kleinur ásamt flatbrauði með hangikjöti. Einnig var ferðabarinn opnaður á ný. Áfram var síðan haldið inn Skarðsströndina og síðan inn í Gilsfjörð og stefnt á Ólafsdal. Þar stofnaði Torfi Bjarnason (1838-1915) fyrsta landbúnaðarskóla á Íslandi, sem starfræktur var á árunum 1880 til 1907. Bærinn fór síðan í eyði en bæjarhúsin voru nýtt um tíma sem skólasel fyrir Menntaskólann við Sund. Árið 2007 var Ólafsdalsfélagið stofnað, sem síðan hefur unnið að endurreisn staðarins með því að endurnýja og lagfæra allar byggingar. Formaður Ólafsdalsfélagsins, Rögnvaldur Guðmundsson, fræddi okkur um sögu staðarins og um framkvæmdir við endurreisnina. Síðan var gengið inn í skólahúsið í kaffi og vöfflur með rjóma.

Frá Ólafsdal var haldið til baka í Saurbæ og yfir í Hvolsdal. Horft var til Hvítadals þar sem skáldið Stefán frá Hvítadal bjó og einnig minnst tveggja annarra skálda, Jóhannesar úr Kötlum sem fæddur var á Goddastöðum í Laxárdal og Steins Steinars sem ólst upp í Saurbænum og naut þar farkennslu Jóhannesar. Ekið var um Svínadal yfir í Hvammssveit. Sunnarlega í dalnum er Hafragil þar sem menn Bolla og Ósvífurs gerðu Kjartani Ólafssyni fyrirsát og drápu. Við Lauga í Sælingsdal fór leiðsögumaðurinn Svavar Gestsson úr bílnum og var honum þökkuð frábær leiðsögn og fræðsla með dynjandi lófataki. Haldið var síðan heim á leið og stansað um stund við rjómabúið á Erpsstöðum þar sem norðanmenn yfirgáfu hópinn og ferðalangar gæddu sér á ís og keyptu osta.

Komið var í Kópavog rétt upp úr klukkan níu og þaðan fór hver til síns heima, glaður og reifur.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica