07/08. tbl. 104. árg. 2018

Umræða og fréttir

Þing bæklunarlækna

Dagana 9.-15. júní voru haldnar tvær alþjóðlegar ráðstefnur bæklunarlækna í Reykjavík.

                                    
                                   Þátttakendur á ráðstefnu NOP voru með sína bækistöð á Nordica hótelinu.

Fyrra þingið var árleg ráðstefna ISAR (International Society of Arthroplasty Registers). Þar mættust um 200 manns frá 20 þjóðum, en á þinginu kynntu sérfræðingar rannsóknir um ísetta gerviliði og eftirfylgni þeirra. Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar til að kanna endingu, fylgikvilla og almenn lífsgæði eftir slíkar aðgerðir. Þessar upplýsingar hafa heilbrigðisyfirvöld nýtt við ákvarðanatöku, stefnumótun, gæðaeftirlit og fleira vegna gerviliðaaðgerða. Flutt voru 120 erindi og kynntur var nýr alþjóðlegur gagngrunnur með upplýsingum um hönnun og eiginleika einstakra íhluta gerviliða.

                                      
                                      Grétar Ottó Róbertsson forseti þings NOP og ISAR og Ragnar Jónsson
                                      formaður Íslenska bæklunarlæknafélagsins höfðu veg og vanda af
                                      ráðstefnunum. Hér eru þeir við lok síðustu dagskrárinnar og kampakátir
                                      með uppskeruna. Myndir/Védís

Síðari ráðstefnan var alþjóðleg ráðstefna norrænna bæklunarlækna (The Nordic Orthopaedic Federation), en í þeim samtökum eru allar Norðurlandaþjóðirnar auk Hollands, Eistlands og Litháen. Þingið er haldið annað hvert ár og skiptast þær 8 þjóðir sem eru í NOF á að halda þingið. Ríflega 400 þátttakendur voru skráðir á þingið. Farið var um víðan völl varðandi meðferðir og rannsóknir í bæklunarlækningum með 120 fyrirlestrum og 50 veggspjöldum. Norrænir rannsakendur kynntu niðurstöður sínar og gestafyrirlesarar fluttu erindi. Meðal áhugaverðra fyrirlestra má nefna fyrirlestur um kosti og ókosti gerviliða í lendhrygg og hugsanlegt ofnæmi fyrir gerviliðum. Cecilia Götherström frá Karolinska Institutet lýsti meðferð fóstra í móðurkviði við hinn arfgenga sjúkdóm beinstökkva (Osteogenesis Imperfecta). Kári Stefánsson fjallaði um erfðafræðirannsóknir og bæklunarsjúkdóma.

Í tengslum við síðari ráðstefnuna var haldið kennslunámskeið um bakverki/bakvandamál þar sem þekktir íslenskir og erlendir fyrirlesarar fjölluðu um þessi vandamál frá ýmsum sjónarhólum.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica