06. tbl. 104. árg. 2018

Umræða og fréttir

Heiðursvísindamaður Landspítala 2018

Runólfur Pálsson var útnefndur heiðursvísindamaður Landspítala 2018 á Vísindum á vordögum 24. apríl síðastliðinn. Runólfur er prófessor í lyflæknisfræði við læknadeild Háskóla Íslands. Hann er jafnframt yfirlæknir nýrnalækninga og umsjónarmaður líffæraígræðsluteymis Landspítala.

                                 
                                 Þorkell Þorkelsson tók þessa mynd um daginn af Páli Matthíassyni og
                                 Runólfi Pálssyni þegar sá síðarnefndi var gerður að heiðursvísindamanni
                                 spítalans fyrir árið 2018.

Runólfur hefur stundað umfangsmiklar rannsóknir á nýrnasjúkdómum sem að stærstum hluta hafa verið unnar í nánu samstarfi við Ólaf Skúla Indriðason nýrnalækni og Viðar Örn Eðvarðsson, sérfræðing í nýrnalækningum barna á Landspítala og dósent við læknadeild Háskóla Íslands. Meginviðfangsefnin hafa verið faraldsfræði og erfðafræði langvinns nýrnasjúkdóms og nýrnasteinasjúkdóms. Rannsóknir Runólfs og Ólafs Skúla á faraldsfræði langvinns nýrnasjúkdóms, í samvinnu við vísindamenn Hjartaverndar, hafa sýnt fram á svipað algengi og í öðrum vestrænum samfélögum þrátt fyrir að lokastigsnýrnabilun sé fátíðari hér en víðast annars staðar. Beinast rannsóknirnar nú að því að finna skýringu á þessu misræmi. Loks hefur samstarf við vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar leitt til uppgötvunar breytileika í erfðavísum sem tengjast aukinni áhættu á þróun langvinns nýrnasjúkdóms. 

Rannsóknir á nýrnasteinasjúkdómi hafa sýnt að vaxandi nýgengi, sem talið hefur verið að tengist vestrænum lífsstílsþáttum, skýrist að mestu af aukinni greiningu einkennalausra steina. Samvinnan við Íslenska erfðagreiningu hefur verið sérlega árangursrík því fundist hafa afar áhugaverðir erfðavísar sem hafa tengsl við nýrnasteinasjúkdóm. 

„Ég lít á þessa útnefningu sem mikinn heiður og viðurkenningu á gildi þrotlausrar vinnu undanfarin 25 ár,“ segir Runólfur. „En þessi viðurkenning snertir ekki eingöngu mig persónulega heldur einnig mína nánustu samstarfsmenn, þá Ólaf Skúla og Viðar Örn. Saman mynduðum við rannsóknarhóp fyrir tæpum tveimur áratugum og höfum síðan unnið að rannsóknum á langvinnum nýrnasjúkdómi og nýrnasteinasjúkdómi. Teymisnálgun er yfirleitt nauðsynleg forsenda árangurs í vísindastarfi og það hefur sannarlega verið raunin í okkar tilviki. Við höfum starfað með fjölda vísindamanna hér heima og erlendis í gegnum árin og fer slíkt samstarf stöðugt vaxandi. Síðast en ekki síst er að geta þeirra mörgu nemenda sem starfað hafa undir okkar handleiðslu og eiga verulegan þátt í þeim árangri sem náðst hefur. Við vinnum að mörgum áhugaverðum verkefnum nú um stundir og því er þessi viðurkenning óneitanlega hvatning til frekari dáða á komandi árum.“



Þetta vefsvæði byggir á Eplica