12. tbl. 100. árg. 2014

Umræða og fréttir

Úr sögu læknisfræðinnar. Solveig Pálsdóttir ljósmóðir

(1821-1886)

Í grein Geirs W. Jacobsens, Erlendar Hem og Jóhanns Á. Sigurðssonar1 í Læknablaðinu um baráttuna við ginklofa í Vestmannaeyjum er fjallað um samstarf Peters Antons Schleisner læknis og Solveigar Pálsdóttur ljósmóður.


Á myndinni er langalangamma greinarhöfundar, Solveig Pálsdóttir ljósmóðir. Meðal afkomenda
hennar í læknastétt eru Páll Torfi Önundarson og Úlfur Ragnarsson.
Uppruni myndarinnar og ljósmyndari er óþekktur.

Solveig fæddist í Vestmannaeyjum árið 1821 og var ein af 13 börnum Páls Jónssonar prests á Kirkjubæ og Guðrúnar Jónsdóttur ljósmóður. Um tvítugt ákvað Solveig að mennta sig og verða ljósmóðir. Guðrún móðir hennar hafði starfað sem ljósmóðir en ekki hlotið til þess formlega menntun.

Miklar líkur eru á að danski héraðslæknirinn í Vestmannaeyjum, dr. Andreas Haaland (1814-1855), hafi hvatt Solveigu til að læra ljósmóðurfræði í Kaupmannahöfn. Solveig var ógift og barnlaus og þurfti að fá undanþágu til náms en engin stúlka hafði fengið námsvist í Fæðingarstofnuninni í Kaupmannahöfn nema hafa sjálf fyrst alið barn.

Undanþága fékkst sem var staðfest með svokölluðu kansellíbréfi dagsettu 9. desember 1841. Í bréfum Haalands kemur meðal annars fram að fyrsta skilyrði til að uppræta ginklofa í Vestmannaeyjum sé að fá lærða ljósmóður til að sinna sængurkonum. Taldi hann orsök ginklofans vera óhreinindi, mataræði og meðhöndlun á naflastreng. Allar konur skyldu fæða börn sín á sérstökum fæðingarstofnunum þar sem ljósmóðir og læknir sæju um umönnun þeirra fyrstu vikurnar. Mæður skyldu hafa börn sín á brjósti í stað þess að gefa þeim kúamjólk og vatn.1 Á þessum tíma var ungbarnadauði mikill og sýndu tölur að 95% var af völdum ginklofa.

Fátækt var mikil í Vestmannaeyjum á þessum árum og húsakynni léleg. Þekkingarleysi og fáfræði ríkti um almennt hreinlæti. Um 7 af hverjum 10 börnum sem fæddust í Vestmannaeyjum létust á fyrstu 5-12 dögum ævinnar.2

Solveig fór til Kaupmannahafnar árið 1842 til eins árs náms. Haaland hélt áfram að berjast fyrir því að sérstök fæðingarstofnun yrði reist í Vestmannaeyjum. Árið 1847 fólu dönsk yfirvöld Schleisner lækni að reisa slíka stofnun og hefja rannsóknir á orsökum ginklofa. Fæðingarstofnunin tók til starfa í september 1847 og var fæðingarstofan flutt á heimili Solveigar 1848 en Matthías Markússon smiður og eiginmaður Solveigar byggði húsið.

Á fyrsta ári eftir að stofnunin tók til starfa lækkaði dánartíðni nýbura  um helming.1 Strangar kröfur voru gerðar um hreinlæti og mataræði. Börnin fengu pela heim með sér ásamt barnafötum og þvottasvampi. Áhersla var lögð á brjóstagjöf og aukið grænmeti í fæðu. Skráning á dánarorsökum nýbura var bætt.2 Eftir að Schleisner fór frá Eyjum hélt Solveig áfram að starfa með sama hætti.1 Árið 1848 fór Schleisner aftur til Danmerkur og var Solveigu falið að sinna læknisstörfum í Eyjum til ársins 1852 en þá kom Davidsen til starfa til ársins 1860. Solveigu var enn á ný falið að gegna læknisstörfum næstu þrjú árin. Magnús Stephensen gerðist héraðslæknir í rúmt ár árið 1863 og var  Solveigu í þriðja sinn falið að annast læknisstörf í héraðinu frá árinu 1864 til 1865 en þá tók Þorsteinn Jónsson læknir til starfa.

Solveig giftist Matthíasi Markússyni trésmið árið 1845 og eignuðust þau 9 börn. Þau byggðu hús sitt, Landlyst, árið 1848 og tveimur árum síðar létu dönsk yfirvöld byggja yfir fæðingarstofnunina sem var í vesturenda húsins. Húsið er nú safn og staðsett á Skansinum í Eyjum. Í safninu er  ljósmóðurtaska Solveigar og ýmis áhöld sem hún notaði við fæðingar og aðhlynningu.

Hjónin fluttu til Reykjavíkur árið 1867 og byggðu sér íbúðarhús við Skólavörðustíg sem þau nefndu Holt. Solveig starfaði í Reykjavík til 1886 er hún lést.2  

Ég kann Læknablaðinu bestu þakkir fyrir að fá tækifæri til að greina lítillega frá ævi Solveigar og starfi sem afkomandi hennar.

Heimildir

1.         Jacobsen GW, Hem E, Sigurðssonar JÁ. Baráttan við ginklofa í Vestmannaeyjum. Læknablaðið 2014; 100: 90-6.

2.         Víglundsson Þ. Blik, ársrit Vestmannaeyja.1967.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica