06. tbl. 100. árg. 2014

Umræða og fréttir

Frá öldungadeild LÍ. Öldungadeild Læknafélags Íslands 20 ára. Magnús B. Einarsson

Aðalfundur og afmælishóf í Skíðaskálanum í Hveradölum

Öldungadeild LÍ var stofnuð 7. maí 1994 á fundi í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík. Svo skemmtilega vildi til að tvítugsafmælið bar upp á hefðbundinn aðalfundardag, miðvikudaginn 7. maí. Þótti við hæfi að halda upp á daginn og var því boðað til fundarins í Skíðaskálanum í Hveradölum.


Aðalstjórn Öldungadeildar LÍ á svölum Skíðaskálans. Frá vinstri Hörður Alfreðsson gjaldkeri,
Magnús B. Einarson formaður og Þórarinn Sveinsson ritari. Ljósm. PÁ.

Að fundarstörfum loknum var efnt til borðhalds. Tveir læknanemar léku á klarinett og píanó undir fordrykk, sem var í boði öldungadeildarinnar, sem og rútuferð á staðinn. Veislustjóri var Páll Ásmundsson og aðalræðumaður Hörður Þorleifsson sem hélt erindi um sögu öldungadeildarinnar með myndasýningu úr starfi deildarinnar. Allnokkrir kvöddu sér hljóðs og sögðu gamansögur. Sungið var úr sérprentuðu sönghefti með undirleik læknanemanna ungu. Páll Ásmundsson hafði samið smellið afmælisljóð um öldungadeildina sem sungið var við mikinn fögnuð. Ásmundur Brekkan var heiðursgestur á afmælisfundinum, en hann, Árni Björnsson og Gunnlaugur Snædal voru helstu hvatamenn að stofnun öldungadeildarinnar. Formaður kallaði Ásmund upp og tilkynnti honum að hann hefði verið kjörinn heiðursfélagi öldungadeildarinnar. Síðar um kvöldið hélt Ásmundur ræðu þar sem hann lét gamminn geisa. Rifjaði hann meðal annars upp tíðar komur sínar í gamla skíðaskálann í Hveradölum allt frá barnsaldri, en á þeim árum var nægur snjór á svæðinu. Ekki sakaði að hann settist við píanóið að lokinni veislu og lék nokkur lög áður en haldið var heim.



Ferðaglaðir öldungar. Fyrsta utanlandsferðin var farin til Borgundarhólms 2003. Frá 2006 hefur
verið farið árlega til útlanda nema 2009 vegna hrunsins. Áfangastaðir hafa verið Slóvenía, Suður-
England, Norður-Frakkland, Madrid, fyrrum Austur-Þýskaland, Norður-Spánn, Toskana og nú
nýlega Mön og Írland. Fararstjórar hafa verið Gunnar Biering, Magnús Jónsson, Kristín Jóhanns-
dóttir og Kristinn R. Ólafsson. Hér gerir öldungahópurinn sig breiðan framan við Dómkirkjuna í
Flórens. Ljósm. PÁ.

Fundargerð og ársskýrslu ásamt erindi Harðar Þorleifssonar má finna á vefsíðu öldungadeildarinnar hjá lis.is.

Magnús B. Einarson formaður



Þetta vefsvæði byggir á Eplica