06. tbl. 100. árg. 2014

Umræða og fréttir

Aldarafmæli langlífasta fagtímarits Íslands fagnað í Iðnó

Aldarafmæli hlýtur að vera að minnsta kosti einnar messu virði. Það þótti aðstandendum Læknablaðsins og buðu því til síðdegishófs í Iðnó við Tjörnina einn fagran vordag, 15. maí. Fjölmargir þáðu boðið og sýndu sig og sáu aðra í gamla leikhússalnum. Þar voru læknar að sjálfsögðu í yfirgnæfandi meirihluta en núverandi og fyrrverandi starfsmenn létu líka sjá sig ásamt öðrum velunnurum blaðsins.
Ragnheiður Gröndal og Pálmi Gunnarsson þöndu sína strengi á sviðinu í Iðnó.

Núverandi ritstjóri blaðsins, Engilbert Sigurðsson, ávarpaði samkvæmið og má lesa orð hans hér í næstu opnu. Hann kallaði til sín ýmsa sem komið hafa við sögu blaðsins og er á engan hallað þótt nafn Arnar Bjarnasonar fyrrverandi ritstjóra sé nefnt fyrst. Hann fékk bók og blóm og aðrir voru líka leystir út með gjöfum.

Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands fékk einnig orðið, óskaði blaðinu til hamingju og greindi frá ákvörðunum stjórnar LÍ um afmælisgjafir til blaðsins. Þar kemur tvennt til. Annars vegar ætlar félagið að styrkja skönnun og innsetningu Læknablaðsins frá upphafi á vefinn timarit.is og er það verk þegar langt komið. Hins vegar er ætlunin að fjárfesta í hugbúnaðinum ScholarOne til þess að halda utan um ritrýni og aðra vinnslu fræðigreina sem birtast eiga í blaðinu og í framhaldi af því verður annað efni einnig unnið í sama gagnagrunni.

Helga Hannesdóttir færði blaðinu og félaginu að gjöf fjóra árganga af fyrirrennara Læknablaðsins sem afi hennar, Guðmundur Hannesson prófessor og fyrsti ritstjóri Læknablaðsins, handskrifaði, fjölritaði og sendi til allra lækna landsins á árunum 1901-1904. Þessa árganga gaf Guðmundur Hannesi syni sínum sem lét binda þá inn í bók sem Helga dóttir hans færði blaðinu og félaginu til varðveislu og eignar.

Fyrir og eftir hina skipulögðu dagskrá léku tvær ungar tónlistarkonur, Anna Sigurðardóttir og Eyrún Engilbertsdóttir, á píanó og saxófón. Einnig birtust á sviðinu þau Ragnheiður Gröndal söngkona og Pálmi Guðmundsson og fluttu nokkur lög við fögnuð gesta. Eins og vaninn er leystist samkvæmið svo upp í almennt spjall og huggulegheit þar til gestir héldu aftur út í vorblíðuna.


Ásgeir Haraldsson barnalæknir, systkinin Magnús smitsjúkdómalæknir og María Soffía augnlæknir
Gottfreðsbörn, Védís Skarphéðinsdóttir ritstjórnarfulltrúi og Þröstur Haraldsson sem hefur lagt
gjörva hönd á hvaðeina á Læknablaðinu, þó ekki borið blaðið út til áskrifenda.


Páll Ásmundsson fyrrum ritstjóri blaðsins (1972-1976) og Birna Þórðardóttir sem lengi þjónaði
blaðinu sem ritstjórnarfulltrúi (1986-2001).

 
Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ árin 1999 til 2007 og Örn Bjarnason ritstjóri Læknablaðsins
1976-1993 með viðurkenningu fyrir framlag sitt til blaðsins.


Sigurður Yngvi Kristinsson blóðsjúkdómalæknir og Hjalti Már Björnsson bráðalæknir, fyrir aftan
þá er Gunnar Bjarni Ragnarsson krabbameinslæknir að reikna út snittufjölda.


Gerður Gröndal lyflæknir, Kristín Sigurðardóttir bráðalæknir, María Soffía Gottfreðsdóttir og
Valgerður Rúnarsdóttir fíknlæknir, - þær virðast geymdar í formalíni og hafa yfirbugað öldrun.


 
Ungliðar í læknastétt áttu fulltrúa, frá vinstri: Anna Stefánsdóttir, Karen Eva Halldórsdóttir, Margrét
Edda Örnólfsdóttir og Kristrún Aradóttir.


Ásgeir B. Ellertsson taugalæknir, kona hans Eiríka Urbancic og Hildur Viðarsdóttir heilsugæslulæknir.


Framkvæmdastjóri LÍ er Sólveig Jóhannsdóttir og með henni er Védís ritstjórnarfulltrúi. Baksviðs er
Hávar Sigurjónsson blaðamaður Læknablaðsins og Inga Þráinsdóttir hjartalæknir sem sat í ritstjórn
blaðsins 2009-2011.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica