05. tbl. 100. árg. 2014

Umræða og fréttir

Sérhæft áverkanámskeið fyrir lækna


Ánægðir nemendur og kennarar á ATLS-námskeiði. Ljósmynd: Rúdolf Adolfsson.

Sérhæft áverkanámskeið, (ATLS, advanced trauma life support), fyrir lækna var haldið í fyrsta skiptið á Íslandi 9.-11. apríl. Alls tóku 16 deildarlæknar og sérfræðingar frá bráðasviði og skurðlækningasviði Landspítala þátt í námskeiðinu sem var haldið í ágætri aðstöðu á Landakoti. Læknarnir Elfar Úlfarsson og Brynjólfur Mogensen unnu að því í nokkra mánuði að fá ATLS-kennarateymi frá Stokkhólmi til Íslands. Mjög jákvæð viðbrögð frá forstjóra Landspítala og framkvæmdastjórum bráðasviðs og skurðlækningasviðs urðu til þess að námskeiðið varð að veruleika en milljóna kostnaður fylgir námskeiði eins og þessu. Það var einnig mjög jákvætt að læknarnir Elfar Úlfarsson og Viðar Magnússon kenndu á námskeiðinu en báðir hafa ATLS-kennararéttindi.


Elfar Úlfarsson einbeittur að kenna á verklegri stöð. Mynd: Védís.

Markmið námskeiðsins er að læknar séu mun betur undirbúnir í að taka á móti mikið slösuðum því góð samhæfð sérhæfing skiptir miklu máli því hver mínúta slasaðra með fjöláverka getur skiptir sköpum. Góð móttaka, greining og meðferð fjöláverkasjúklinga auka mikið lífslíkur viðkomandi og minnka kostnað samfélagsins. Læknarnir voru æfðir í að greina og takast á við hin ólíkustu vandamál á skipulagðan og markvissan hátt. Námskeiðinu lauk með stöðluðu ATLS-prófi sem reynir á þolrifin en skemmst er frá því að segja að árangurinn var mun betri en hjá þeim sem við berum okkur gjarnan við. Læknarnir voru mjög ánægðir með námskeiðið og vonumst við til að sérhæft áverkanámskeið verði að árlegum viðburði á Íslandi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica