01. tbl. 100. árg. 2014

Umræða og fréttir

Úr fórum Læknablaðsins 1915-2014. Auglýsingar í tímans rás


Alla tíð hafa auglýsingar skipt verulegu máli fyrir Læknablaðið einsog sést best af kápunni á fyrsta tölublaðinu 1915. Af fjölda þeirra í blaðinu sést hvernig þjóðarhagur hefur verið. Úr þeim má lesa mikinn tíðaranda, í málfari, stíl, efnistökum og innihaldi. Það er langur vegur frá heimatilbúnum dálkaauglýsingum um 1950 til lyfjaauglýsinga ársins 2013.

Hér á síðunni eru birtar af handahófi auglýsingar úr 36. árgangi blaðsins árið 1951. Þá var þérað í auglýsingum og bundið mál með spaugsömu ívafi höfðaði betur til neytandans en óbundið: Allt yðar líf, eitthvað frá S.Í.F. 

Það eru ekki gefin mörg símanúmer (þau eru fjögurra stafa!) og bílaeign landsmanna allt annars staðar á skalanum en nú: Hafliði fiskkaupmaður hvetur fólk til að ganga við hjá sér, - til að fá í soðið, - allur matur var soðinn í vatni um miðja öldina. Það hefði flokkast sem bilun eða matargerðaráráttuþrjóskuröskun að baka fisk árið 1951. Ópal og kók er svo sem óbreytt útlits, en hann fær sér kók og hún prjónar sokka, ehmm, hvað eru mörg R í því? Það þarf heldur engan langhund með CocaCola, lógóið talar sjálft.


 Á þessum tíma eru ný fyrirtæki að rísa í eigu ríkisins, og þau bera stolt nafn eigandans, - það er enginn vafi með eignarhaldið, Tóbakseinkasala ríkisins með neftóbak einsog hver vill, og Skipaútgerð ríkisins er með tilfinningaþrunginn texta, lýðveldið er nýfengið og kalda stríðið handan við hornið, og lífsnauðsyn að þjappa sér saman sem þjóð. Góður skipakostur fyrir fólk og farangur staðfestir menningu landsins og gerir það lífvænlegra, ferðizt með þeim. Þarna er zetan líka gjaldgengur íbúi þessa samfélags. James Bond er í vinnu hjá Sjóvátryggingafélaginu, hann er æsilegur sölumaður með hraustlegt letur sem hallar aðeins til að ýta undir styrkleikann og sveifluna í innihaldinu, og með eina upphrópunarmerkið sem sást á kreiki í auglýsingum þessa árs. Það er fjölskyldufaðirinn sem tryggir líf sitt hjá Bond, meira að segja strax sem er tvítekið og gæti því þýtt strax!

Teikningin og textinn frá Þvottamiðstöðinni tekur af öll tvímæli: sú sem þvær sjálf bograr yfir bala með gamaldags svuntu og innskeif í stígvélum með ógreitt stutt hár og sútarsvip, en sú sem sendir óhreina tauið í Þvottamiðstöðina er upprétt, snýr fram með þvottinn samanbrotinn, með rosaflotta svuntu og spariskó og skart, og er nýgreidd. Þarf frekari vitnanna við?





Þetta vefsvæði byggir á Eplica