03. tbl. 99. árg. 2013

Umræða og fréttir

Úr penna stjórnarmanna LÍ. Hversu mikið er fullt starf? Magnús Baldvinsson

Úr kjarasamningi:

4.1.2 Vinnuskylda. Vinnuskylda læknis í fullu starfi skal vera 40 klukkustundir á viku.

4.1.3 Yfirvinnu- og vaktaskylda. Læknum skal skylt að vinna yfirvinnu og taka vaktir þar sem þess er þörf.

 

Margur gæti haldið að þetta væri tekið beint úr sögu George Orwell, Animal Farm.1

Eitt af því sem mér hefur lengi leikið hugur á vita er hvað felst í hugtakinu fullt starf. Þegar ég var ráðinn í fullt starf sérfræðilæknis hjá Landspítala árið 2007 var mér tjáð að það þýddi 40 stunda vinnuviku á dagvinnutíma og svo vaktir í samræmi við stöðuhlutfall.

Samkvæmt þessu felst fullt starf því í því hversu margir læknar skipta með sér vöktum á viðkomandi deild. Það er segja ef læknarnir eru fjórir þá er fullt starf um það bil 160 dagvinnutímar auk 128 vaktavinnutíma á mánuði en ef læknarnir eru 8 verða þetta 160 dagvinnutímar auk 64 vaktavinnutíma.

Þessir vaktavinnutímar eru hjá hinum dæmigerða sérfræðilækni svokallaðir gæsluvaktartímar sem geta verið misjafnlega borgaðir eftir því hve lengi er talið að læknir sé í húsi að meðaltalinni vakt. Dagvinnulaun geta reyndar líka verið misjöfn og fara eftir starfsaldri og svokölluðum viðbótarþáttum. Að fara út í nánari útlistun og útdeilingu á viðbótarþáttum er meira enrúmast í 700 orða pistli en þar gæti maður einnig haldið að farið væri eftir reglum úr sögunni Animal Farm: „All animals are equal, but some animals are more equal than others“.

Það er ekki nóg að fullt starf geti verið breytilegt milli lækna og deilda heldur getur það skyndilega breyst hjá læknum ef til dæmis vöktum fjölgar eða fækkar vegna skipulagsbreytinga og/eða læknum fækkar á viðkomandi deild. Þannig getur læknir sem var á fjórskiptum vöktum þurft að fara á þrískiptar vaktir ef einn hættir og eykst vinnutími hans þá í 160 dagvinnutíma auk 171 vaktavinnutíma. Það kostar viðkomandi stofnun ekki krónu að auka vaktabyrðina svona stórkostlega. Sama staða getur komið upp yfir sumarleyfistíma eða vegna veikinda. Allir tímarnir eru jafngildir hvort sem læknir vinnur 50 eða 150 vaktatíma (fyrir utan 15% álag ef vaktir fara yfir 72 á ári hjá læknum í SKÍ). Í þessu dæmi sparar stofnunin dagvinnulaun eins læknis en líklega mun verkefnum á dagvinnutíma ekki fækka að sama skapi.

Ég geri ráð fyrir að flestir læknar hafi gert sér grein fyrir þessu fyrirkomulagi en ég trúi að fæstir hafi gert sér grein fyrir fáranleika þess. Þetta þýðir í raun að læknir í fullu starfi hjá ríkinu er hnepptur í ánauð þar sem hann hefur lítið sem ekkert um það að segja hversu mikið hann á að vinna. Það má líka líkja þessu við að taka verðtryggt lán þar sem þú hefur enga yfirsýn yfir hve mikið þarf að borga til baka.

Þarfir spítalans stjórna vinnuframlagi og hvati spítalans er sparnaður.

Er ekki kominn tími til að læknar verðleggi frítíma sinn hærra?

1youtube.com/watch?v=ClaNnaMgbF0

Orwell G. Animal farm. 1945.

Kom út í íslenskri þýðingu Jóns frá Kaldaðarnesi: Dýrabær, með formála Þorsteins Gylfasonar, 1985. Árið 1949 kom bókin út á íslensku undir titlinum: Félagi Napóleon: ævintýri.
Bíómyndin sem vísað er til á youtube var gerð 1954.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica