10. tbl. 97. árg. 2011

Umræða og fréttir

Viljum að sem flestir læknar njóti réttindanna – um fjölskyldu- og styrktarsjóð


u05-fig1„Það er mikilvægt fyrir lækna að greiða í sjóðinn til að öðlast réttindi“, segir Dóra Lúðvíksdóttir formaður FOSL, Fjölskyldu og styrktarsjóðs lækna, og höfðar hún þar sérstaklega til sjálfstætt starfandi lækna sem þurfa sjálfir að standa skil á greiðslum til að öðlast full réttindi.

Fjölskyldu og styrktarsjóðurinn varð til við kjarasamning sjúkrahús- og heilsugæslulækna árið 2001. Hugmyndin að stofnun sjóðsins kom upphaflega frá samninganefnd ríkisins og var hlutverk hans að jafna réttindi í fæðingarorlofi miðað við fyrri lög, segir Dóra.

Til nánar skýringar segir hún að greiðslum í sjóðinn sé þannig háttað að vinnuveitandi greiði 0,41% af heildarlaunum hvers læknis en greiðslur eru ekki dregnar af launum. „Séu læknar hins vegar sjálfstætt starfandi þurfa þeir sjálfir að greiða í sjóðinn og miðast iðgjöldin þá við reiknað endurgjald. Þetta á einnig við um þá lækna sem eru í hlutastarfi á sjúkrahúsi og starfa að hluta sjálfstætt. Þeir þurfa einnig að greiða í sjóðinn af sjálfstæða rekstrinum til að öðlast full réttindi. Það er að gefnu tilefni sem við viljum hvetja sjálfstætt starfandi lækna til að standa skil á greiðslum í sjóðinn.

Frá 2005 hefur sjóðurinn greitt fæðingarstyrki sem eru umtalsvert hærri en styrkir annarra stéttarfélaga. „Styrkurinn hefur verið greiddur til barns en ekki læknis en til athugunar er hvort greiða megi 1 1/2 styrk ef báðir foreldrar eru læknar. Fullur styrkur til beggja foreldra þýddi hins vegar að lækka þyrfti styrkupphæð hjá öllum. Fæðingarstyrkirnir eru stærstu útgjöld sjóðsins sem við erum stolt af að standa fyrir,“  segir Dóra.

Frá árinu 2002 hafa einnig verið veittir styrkir til félagsmanna vegna óvænts tekjutaps. Þetta getur verið vegna veikinda læknis, veikinda maka eða barna. Þessi styrkur hefur reynst mörgum vel þegar alvarleg veikindi koma upp. Um er að ræða eingreiðslustyrk eða hlutfall af launum í þrjá mánuði. Einnig hefur sjóðurinn greitt útfararstyrki frá árinu 2007 til þeirra félagsmanna sem greitt hafa í sjóðinn. Það hefur sennilega aldrei verið mikilvægara en einmitt nú að njóta góðra réttinda vegna óvæntra útgjalda, fæðingar, veikinda eða andláts. Við viljum auðvitað að sem flestir læknar njóti þeirra réttinda sem Fjölskyldu-og styrktarsjóðurinn veitir, segir Dóra Lúðvíksdóttir að lokum.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica