09. tbl. 97. árg. 2011

Umræða og fréttir

Sögulegt tækifæri – segir landlæknir um flutning embættisins í Heilsuverndarstöðina

„Það eru stór tímamót í sögu landlæknisembættisins að vera komið í þetta hús, sem á sínum tíma var byggt af miklum stórhug sem miðstöð heilsuverndar í Reykjavík, undir nafninu Heilsuverndarstöð Reykjavíkur,“ segir Geir Gunnlaugsson landlæknir og dregur fram gamalt bólusetningarskírteini frá árinu 1962 þar sem heiti stofnunarinnar á ensku er skráð Institute of Public Health. „Við gætum nánast notað þetta bréfsefni óbreytt núna,“ segir hann léttur í bragði

u05-fig1
„Heilsuverndarstöðin var á sínum tíma byggð af miklum stórhug sem
miðstöð heilsuverndar,“ segir Geir Gunnlaugsson landlæknir.

„Byggingin ber vitni um meðvitund stjórnvalda á þeim tíma um mikilvægi forvarna og lýðheilsu, húsið er stórt og fallegt og nú gefst okkur sögulegt tækfæri til að efla starf í húsinu sem frumkvöðlana sem stóðu að byggingu hússins um 1950 dreymdi um og lögðu grunninn að.“

Heilsuverndarstöð Reykjavíkur var teiknuð af Einari Sveinssyni arkitekt og er bæði sérstök og falleg bygging með göngubrúm, súlum og fallegum gluggum. Það hefur á undanförnum árum gengið í gegnum endurbætur og er að sögn Geirs í ágætu ástandi.

Í húsinu hefur farið fram margvísleg heilsu- og læknisfræðileg starfsemi í gegnum árin og má nefna slysadeild, hjúkrunardeild, berklavarnir, ung- og smábarnavernd, mæðravernd, húð- og kynsjúkdómadeild, skrifstofur borgarlæknis og fleira. „Hér hefur sannarlega verið unnið fjölbreytt heilsuverndarstarf og því rökrétt að endurskipulagt og öflugt Embætti landlæknis skuli vera komið í þetta hús. Ég hef einnig orðið var við mikla ánægju fjölmargra sem ég hef hitt á förnum vegi yfir því að húsinu skuli hafa verið fengið þetta hlutverk á ný.“

Embætti landlæknis og Lýðheilsustöð sameinuðust í eina stofnun þann 1. maí síðastliðinn undir heitinu Embætti landlæknis og Geir segir flutninginn í nýtt húsnæði á þessum tímamótum vera forsendu fyrir vel heppnaðri sameiningu.

„Það var alveg ljóst að finna þyrfti nýtt húsnæði fyrir sameinaðar stofnanirnar þar sem húsnæði beggja, landlæknisembættisins við Austurströnd og húsnæði Lýðheilsustöðvar við Laugaveg, var of lítið fyrir sameinað embætti. Með því að stíga hér inn núna má segja að sameiningin verði raunveruleg og stofnuninni sköpuð ytri umgjörð sem getur stutt við öflugt og fjölbreytt starf eins og fólk væntir sér af embættinu og lög um það gera ráð fyrir,“ segir Geir Gunnlaugsson landlæknir, nýfluttur með sitt fólk í Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica