05. tbl. 96.árg. 2010

Umræða og fréttir

Heiðursfélagar meðal röntgenlækna

Á félagsfundi Félags íslenskra röntgenlækna (FÍR) þann 3. febrúar síðastliðinn voru fimm félagar einróma kjörnir heiðursfélagar. Þetta voru þeir Baldur F. Sigfússon, Einar H. Jónmundsson, Jón L. Sigurðsson, Kristján Sigurjónsson og Pedro Riba. Allir hafa þeir á starfstíð sinni unnið sér inn orðstír vegna vísindalegrar vinnu í myndgreiningarfræðum og/eða stuðlað að framgangi þeirra skv. 7.gr laga félagsins.

u11-fig1
Frá vinstri: Baldur F. Sigfússon, Einar H. Jónmundsson, Jón L. Sigurðsson
og Kristján Sigurðsson. Á myndina vantar Pedro Riba. Ágústa Andrésdóttir
tók myndina.

Þeir hafa allir verið frumherjar í myndgreiningu á Íslandi. Svo stiklað sé á stóru er Baldur sérhæfður í mammographiu og var yfirlæknir röntgendeildar Krabbameinsfélags Íslands frá stofnun þess í janúar 1985. Baldur hefur verið mjög virkur í norrænu samstarfi og var til dæmis ritari 50. Norræna þingsins 1992 og svo forseti 55. Norræna þingsins árið 2002. Hann sat einnig í stjórn Stiftelsen Acta Radiologica 1989 til 1996 sem varamaður og svo aðalmaður frá 1996 og var formaður 1997-98. Hann hefur einnig verið verið mjög virkur í kennslu- og vísindastörfum sem og ritstörfum og varð dósent í geislagreiningu við læknadeild HÍ 1984 og aðjúnkt frá 1997.

Einar er sérhæfður á sviði æðaþræðinga og inngripa og starfaði sérstaklega við hjartarannsóknir og kransæðaþræðingar frá 1977 til 2002. Hann var einn af máttarstólpum deildarinnar við Hringbraut þar til hann lét af störfum á sjötugsafmælisdaginn 27. febrúar 2009. Einar var gjaldkeri Norræna þingsins 1982.

Jón er sérhæfður í myndgreiningu taugakerfisins og æðaþræðingum og var yfirlæknir á Landspítala frá september 1974 til október 2000. Jón var ritari 31. Norræna þingsins sem og á 40. þinginu. Jón var stofnfélagi og aðalmaður í stjórn Nordisk Forening for Neuroradiologi og er heiðursfélagi í NFMR-Norræna félaginu.

Kristján er sérhæfður í myndgreiningu sogæðakerfisins og hefur mikla reynslu af myndgreiningu stoðkerfisins. Kristján hefur lengi verið einn af máttarstólpum deildarinnar í Fossvogi og verið mikilvirkur í kennslu, ekki síst kennslu verðandi röntgenlækna.

Pedro er sérhæfður í myndgreiningu bláæðakerfisins. Hann starfaði fyrst á Landspítala en svo á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, síðast sem forstöðulæknir. Í setu sinni í stjórn FÍR stóð hann fyrir mjög öflugu fræðslustarfi.

Það var því mikill heiður og ánægja að bera upp þessi nöfn til kjörs heiðursfélaga FÍR og bættust þeir í hóp þeirra heiðursfélaga sem fyrir eru en það eru Gísli Fr. Petersen, Brian Worthington, Kolbeinn Kristófersson, Ásmundur Brekkan, Henrik Linnet og Örn Smári Arnaldsson.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica