Listamaður mánaðarins
front

Ljósmynd af pottablómi í gluggakistu sem Katrín Elvarsdóttir (f. 1964) tók af rælni fyrir nokkrum árum kveikti hjá henni löngun til að segja sögu. Réttara sagt nokkrar sögur, því í kjölfarið safnaði hún ljósmyndum í seríu sem hún kallar Equivocal - Margsaga upp á íslensku. Verkið vannst hægt en örugglega á nokkurra ára tímabili og víða um heim þar sem Katrín fann réttar aðstæður. Hún lék sér að því að vinna á keimlíkum stöðum þannig að myndirnar gætu allt eins virst úr einu og sama húsinu. Sögupersónur bættust við, sumir snúa baki í áhorfendur en aðrir horfa áleitnum augum beint í augu þeirra. Að auki klæddi Katrín ólíkar manneskjur á mismunandi aldri í samskonar föt og myndaði á svipuðum stað þannig að það er eins og sama manneskja sé mynduð ung og gömul. Útkoman er heilsteypt sería um 40 mynda þar sem greina má gegnumgangandi þráð en hver mynd tekur mann í ólíkar áttir í tíma og rúmi. Endurtekningar skapa undirtón sem maður skynjar ómeðvitað fremur en greinir augljóslega. Maður spyr sig hvað gerðist áður en smellt var af og hvað á eftir, hvað átti sér stað á milli tveggja mynda, hver er í aðalhlutverki og stundum læðist að manni sá grunur að maður sjálfur sé þátttakandi í frásögninni. Á forsíðu Læknablaðsins er mynd ekki ósvipuð þeirri sem hratt atburðarásinni af stað en þó tekin á öðrum stað og öðrum tíma. Ljósmyndin Elliheimili, 2009, lætur lítið yfir sér, sýnir glugga sem vísar út í garð þar sem fyrir er stórt tré, blúndugardínur fyrir glugganum og burkni á syllunni. Mörkin á milli þess sem er fyrir utan og innan skarast og einhver dularfull stemning ríkir í hverdagslegri kyrrðinni. Þess háttar smávægileg atriði einkenna seríuna alla og það sem ekki er sýnt verður ráðandi, líkast því sem maður upplifir í góðum taugatrylli í bíó. Katrín lætur fegurð og óhugnað kallast á og ýjar að atburðarás og jafnvel átökum þrátt fyrir að sýna mest megnis stöðugt ástand. Hún hefur sýnt ljósmyndirnar á tveimur sýningum í gallerí Ágúst á Baldursgötu 12 árið 2008 og nú í vor 2010 en fyrirhuguð er útgáfa bókar með myndunum öllum.

 

Markús Þór Andrésson







Leita á vefnum




Flýtival


Þetta vefsvæði byggir á Eplica