Listamaður mánaðarins
forsidumynd

Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir (f. 1982) útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands fyrir nokkru og hefur verið iðin við listsköpun á vinnustofu sinni síðan. Hún hefur verið virk í sýningahaldi og skipulagningu listviðburða og sýnir um þessar mundir ný verk á sýningunni Teikn í Nýlistasafninu við Skúlagötu. Málverkin tvö sem mynd er af á forsíðunni virðast talsvert ólík en eru samofin í heildarhugsun listakonunnar. Hluti af sama heimi, að hennar sögn, einhvers staðar á mörkum lífs og dauða. Segja má að veran í öðru verkinu eigi sér samastað í hinu. Málverkin byggjast á dempaðri litapallettu í jarðartónum. Þar skiptast á hreinir og geómetrískir litafletir eða frjálsleg pensilskrift og lína. Listakonan lýsir verunum í málverkum sínum sem fulltrúum ólíkra kennda sem gefnar eru til kynna með líkamsstöðu, umhverfi og munum sem eru málaðir í kring, sem og myndbyggingunni í heild. Abstraktverkin eru tilraun til að skapa framandi rými, umhverfi sem á hvergi sinn líka í raunveruleikanum. Verk Jóhönnu eru allt í senn málverk, teikningar, myndbönd og gjörningar – miðlar sem hún hefur á stuttum ferli tileinkað sér og mótað per-sónulega. Þau mótast af innsæi og spuna því hún reynir að fanga hið óræða sem á sér rætur í eigin hugskoti og í samskiptum á milli fólks. Myndbandsverk Jóhönnu eru draumkennd, full af táknrænum lit, formum og gjörðum. Sviðsettir helgisiðir leiða hugann að hugmyndinni um listamanninn í hlutverki skapara sem gæðir líflaust efni lífi eða sjamanista sem opnar fólki sýn inn í annan heim. Hún setur fram eins konar kerfi og leiðin til upplifunar liggur í gegnum kerfið og inn á svæði sem hún lýsir sem samastað tilfinninga og krafts mannlegrar tilveru. Hún leggur með áhorfendum í leiðangur þangað og kallar til þess fram leiðendur. Leiðsögumaður eins og sá sem sjá má í málverki hennar vísar veginn um allífið í geómetríu og lit. Viðmót Jóhönnu í myndlist endurspeglar á einhvern hátt svipaða afstöðu og til trúar á æðri máttarvöld; fullvissan um að eitthvað eftirsóknarvert sé til staðar handan skilningarvitanna og að sífelld iðkun og leit muni færa mann nær því.

 

Markús Þór Andrésson





Leita á vefnum




Flýtival


Þetta vefsvæði byggir á Eplica