Ávarp formanns

Ávarp formanns

Velkomin á XIX. þing Félags íslenskra lyflækna

Pdf-útgáfa


Það er mér sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin á XIX. vísindaþing Félags íslenskra lyflækna í Reykjavík. Blað er nú brotið í sögu þingsins því það er haldið í höfuðborginni í fyrsta sinn. Óneitanlega er eftirsjá af þeirri stemningu sem jafnan hefur fylgt þinghaldi á landsbyggðinni að sumarlagi. En þrátt fyrir áhugaverða dagskrá hefur þátttaka ekki staðið undir væntingum síðustu ár og því var ákveðið að halda þingið í Reykjavík að þessu sinni.
Ötullega hefur verið unnið að því að gera dagskrá þingsins sem glæsilegasta og munu  valinkunnir innlendir fyrirlesarar fjalla um viðfangsefni sem ættu að höfða til allra lyflækna og annarra áhugasamra um lyflæknisfræði. Ítarleg umfjöllun verður um langvinna lungnateppu og kæfisvefn sem er meðal algengustu heilbrigðisvandamála Vesturlanda. Þá verður fjallað um berkla sem enn eru yfirvofandi ógnvaldur sökum sýklalyfjaónæmis og um viðbrögð við inflúensufaröldrum með hliðsjón af nýafstaðinni svínaflensu. Greint verður frá framþróun í meðferð HIV-sýkingar sem breyst hefur í viðráðanlegan langvinnan sjúkdóm. Ennfremur verða krufin til mergjar algeng álitamál varðandi lyfjameðferð, annars vegar blóðþynningarmeðferð hjá sjúklingum með gáttatif og hins vegar notagildi prótóndæluhemla.
Að vanda eru vísindarannsóknir veigamikill hluti þingsins. Alls hafa 102 innsend ágrip verið valin til kynningar á þinginu og verða þau öll kynnt með veggspjaldi auk þess sem höfundar munu gera grein fyrir helstu niðurstöðum sínum í stuttu máli. Þessi mikli fjöldi ágripa er til vitnis um verulega grósku í vísindaiðkun lækna og er það afar ánægjulegt, ekki síst í ljósi erfiðleika sem nú steðja að íslensku samfélagi vegna efnahagshrunsins og óneitanlega þrengja að akademísku starfi. Á slíkum tímum er mikilvægara en nokkru sinni að við snúum bökum saman í því skyni að varðveita og jafnvel efla vísindastarfsemi með hag sjúklinga okkar og samfélags að leiðarljósi. Þetta göfuga markmið er í raun megintilgangur þings Félags íslenskra lyflækna. Fyrir unga vísindamenn er þingið kjörinn vettvangur til að koma afrakstri starfa sinna á framfæri. Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta ágrip ungs læknis og læknanema og hafa sex framúrskarandi ágrip verið valin af vísindanefnd Félags íslenskra lyflækna til að keppa um verðlaunin. Þá verður málþing þar sem kastljósi verður beint að rannsóknum Hjarta-
verndar og Íslenskrar erfðagreiningar og er óhætt að segja það sé einn af hápunktum þingsins. Þessar vísindastofnanir hafa verið í fremstu röð í heiminum á sviði faraldsfræði- og erfðarannsókna undanfarin ár og munu forsvarsmenn þeirra, Vilmundur Guðnason og Kári Stefánsson, reifa merka áfanga sem náðst hafa og  veita innsýn í hvert för verður heitið á næstu árum. Loks verður fjallað um stöðu klínískra lyfjarannsókna og leitast við að meta hvort raunveruleg tækifæri séu fyrir slíkar rannsóknir hér á landi í framtíðinni.
Þinginu lýkur með hátíðarkvöldverði á veitingastaðnum Silfri á Hótel Borg og vonast ég til að sem flestir lyflæknar og aðrir þinggestir sjái sér fært að koma og njóta ánægjulegrar samverustundar í góðra vina hópi.
Margir hafa lagt hönd á plóg til að gera þetta þing að veruleika og færi ég þeim öllum bestu þakkir fyrir. Ráðstefnufyrirtækið Athygli - ráðstefnur annast nú skipulag og undirbúning þingsins í fyrsta skipti og þakka ég þeim fyrir sérlega ánægjulegt samstarf. Að síðustu færi ég öllum þeim fyrirtækjum sem styrkt hafa þingið okkar bestu þakkir fyrir þeirra mikilvæga framlag.

 

Runólfur Pálsson, læknir
Formaður Félags íslenskra lyflækna




Þetta vefsvæði byggir á Eplica