Vísindaráð Landspítala

Vísindaráð Landspítala

Vísindaráð er framkvæmdastjórn til ráðgjafar um vísindastefnu og vísindastarf á sjúkrahúsinu gagnvart háskólastofnunum og öðrum. Vísindaráð er skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar til ráðgjafar um þau verkefni hennar sem snúa að háskóla- og vísindastarfi og þróun heilbrigðisvísinda

Vísindaráð á aðild að úthlutun styrkja úr Vísindasjóði Landspítala samkvæmt reglum sjóðsins, og semur matsreglur í samræmi við alþjóðlegar viðmiðanir og með hliðsjón af matsreglum íslenskra háskóla.

Vísindaráð hefur það hlutverk að sjá um kynningu á vísindastarfi á spítalanum og er til ráðgjafar við veitingu viðurkenninga fyrir vísindastörf á spítalanum. Árlega eru haldnir vísindadagar, Vísindi á vordögum, þar sem markverðar vísindaniðurstöður eru kynntar í fyrirlestrum og á veggspjöldum fyrir starfsfólki spítalans, fræðimönnum og almenningi. Einnig eru þá veitt verðlaun til vísindamanna og styrkir veittir úr Vísindasjóði Landspítalans.

Vísindaráð Landspítala er skipað sjö mönnum til fjögurra ára. Verkefnastjóri Vísindaráðs er Sigríður Sigurðar-dóttir, skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar.

Vísindaráð Landspítala

Gísli H. Sigurðsson yfirlæknir og prófessor (formaður) - skipaður af læknaráði

Rósa Björk Barkardóttir yfirnáttúrufræðingur (varaformaður) - skipuð af forstjóra Landspítala

Eiríkur Örn Arnarson forstöðusálfræðingur og dósent - skipaður af forstjóra Landspítala

Guðrún Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur og prófessor - skipuð af hjúkrunarfræðideild HÍ

Jón G. Jónasson yfirlæknir og prófessor - skipaður af læknadeild HÍ

Magnús Karl Magnússon sérfræðilæknir og prófessor - skipaður af læknadeild HÍ         

Sigríður Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur og lektor - skipuð af hjúkrunarráði

 

Varamenn

Einar Stefánsson yfirlæknir og prófessor - skipaður af læknadeild HÍ

Gunnar Guðmundsson aðstoðaryfirlæknir og aðjúnkt - skipaður af læknadeild HÍ

Helga Bragadóttir hjúkrunarfræðingur og lektor - skipuð af hjúkrunarráði

Herdís Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur og prófessor - skipuð af hjúkrunarfræðideild HÍ

Inga Þórsdóttir forstöðumaður og prófessor - skipuð af forstjóra Landspítala

Magnús Gottfreðsson yfirlæknir og dósent - skipaður af læknaráði

Þórður Helgason heilbrigðisverkfræðingur - skipaður af forstjóra Landspítala

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica