01. tbl. 95. árg. 2009

Umræða og fréttir

Kröftugir kandídatar á Landspítala. Engilbert Sigurðsson og Sigrún Ingimarsdóttir

Vaskur hópur læknakandídata starfar nú á Landspítala. Hópurinn hefur staðið fyrir ýmsum viðburðum og verið liðtækur í umbótastarfi. Hafa þau látið til sín taka, innan sem utan spítalans, og frumkvæði þeirra vakið verðskuldaða athygli.

Hopmynd_kandidatar_200_opt

Læknakandídatar á Landspítala 2008-2009. Ljósmyndari: Inger Helene Bóasson.

Í haust stóðu þau fyrir upplýsingafundi með 4. árs læknanemum og þau hafa jafnframt unnið að því að taka saman leiðbeiningar um starf kandídata á deildum. Þar verður meðal annars að finna gagnlegar upplýsingar um aðstöðu starfsfólks, efni sem tengist klínísku starfi og annað sem læknanemar og kandídatar þurfa á að halda. Jafnframt er hópurinn vakandi fyrir umbótum á fræðsluefni og upplýsingum sem Skrifstofa kennslu vísinda og þróunar (SKVÞ) hefur tekið saman fyrir kandídata.

Í nóvemberhefti Læknablaðsins 2008 var viðtal við Árdísi Ármannsdóttur um átakið „Gleðispítalann“ en þá mæltust kandídatar til þess að starfsmenn spítalans mættu til starfa í bleikum klæðnaði. Þennan dag mátti sjá bleikar slaufur, borða, sloppa og boli um allan spítalann. Eldri kollegar létu margir hverjir ekki sitt eftir liggja og mættu í skyrtum eða með bindi í bleikum lit. Í desember bættu þau um betur, en þá stóð Félag ungra lækna fyrir „rauðum dögum“ sem voru liður í verkefninu „Gleði og gjafmildi í desember“. Starfsfólk og nemendur Landspítala voru með þessu hvattir til að gefa blóð og láta gott af sér leiða í jólamánuðinum.

Fimmtudaginn 4. desember síðastliðinn bauð skrifstofa kennslu, vísinda og þróunar (SKVÞ) hópnum í heitt súkkulaði og þjóðlegar jólaveitingar. Veitt voru verðlaun fyrir klíníska kennslu kandídata, að fengnum tilnefningum frá þeim. Verðlaunin hlutu Inga Sigurrós Þráinsdóttir hjartalæknir, Ingvar Hákon Ólafsson heila- og taugaskurðlæknir og Tryggvi Egilsson öldrunarlæknir.

 

Inga Sigurrós Þráinsdóttir hjartalæknir, Ingvar Hákon Ólafsson heila- og taugaskurðlæknir og Tryggvi Egilsson öldrunarlæknir taka við verðlaununum úr hendi Engilberts Sigurðssonar sviðsstjóra SKVÞ. Ljósmyndari: Inger Helene Bóasson.

 

Páll Matthíasson geðlæknir var fenginn til að halda fyrirlestur um hamingjuna og voru kandídatar spurulir um efnið. Við sama tækifæri var tekin mynd af hópnum. ?

Á Landspítala starfa nú árlega 50-60 kandídatar. SKVÞ hefur unnið að umbótum á kandídatsárinu á undanförnum árum sem hefur skilað sér í vaxandi ánægju þeirra með árið. Móttökudagar hafa verið haldnir tvisvar á ári þar sem farið er yfir atriði eins og fagmennsku, sýkingavarnir, lyfjafyrirmæli og endurlífgunarferli og námskeið haldin í notkun forritanna Sögu og Therapy. Kandídatar eru boðaðir í viðtal tvisvar á starfstímanum, um frammistöðu, ánægju og framtíðaráform. Óskað er eftir ábendingum frá kandídötunum um það sem vel er gert og hvað betur megi fara. Upplýsingarnar eiga að bæta þjálfun á kandídatsárinu og hjálpa kandídötum við að þróa starfsferil í læknisfræði. Vorið 2008 var komið á tilfellafundi kandídata. Þegar hafa verið birt í Læknablaðinu þrjú tilfelli af níu sem þar voru kynnt. Ljóst er því að tilfellafundur kandídata verður árlegur viðburðum á vordögum.

Með umbætur í huga kannar kennslu- og fræðasvið Landspítala nú árlega viðhorf kandídata til ársins. Niðurstöður fyrir veturinn 2007-2008 sýndu að þeir voru almennt ánægðir með árið; 94% kandídatanna voru annaðhvort frekar ánægðir eða mjög ánægðir, samanborið við 80% árið á undan. Helstu ánægjuefni kandídata á deildum voru „hæfir og áhugasamir sérfræðingar“ og „tækifæri til að takast á við flókin og fjölbreytt vandamál“. Tímaleysi og mannekla voru helstu skýringar óánægju kandídata.

Búast má við að hópurinn í ár haldi uppteknum hætti á komandi ári og láti til sín taka á Landspítala. Von er á öflugum hópi nýrra kandídata á vordögum 2009. Fyrri kynni af þeim gefa fyrirheit um áframhaldandi umbótastarf. 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica