10. tbl. 94. árg. 2008

Umræða og fréttir

Frá CPME. Katrín Fjeldsted

Hinn 1. janúar 2008 tók Michael Wilks við sem forseti CPME, Breti sem verið hefur nokkuð sýnilegur í brezka læknafélaginu BMA vegna starfa sinna í siðfræðinefnd þess og hefur nafn hans birzt í því samhengi í British Medical Journal, ekki sízt fyrir ötult starf að velferð fanga og stríðshrjáðra fórnarlamba sem veita þarf læknisþjónustu hvernig sem aðstæður kunna að vera. Þannig stóð brezka sendinefndin í CPME fyrir tilstilli Michaels að því að samþykkt var samhljóða harðorð ályktun um meðferð fanga í Guantanamo, svo eitthvað sé nefnt.

30 lönd í CPME, skrifstofa í Brüssel

Aðildarlönd CPME eru orðin 30 talsins. Lönd úr Austur-Evrópu hafa komið inn hvert á fætur öðru, Eystrasaltslönd sömuleiðis, nú síðast sótti Lettland um aðild og var boðið velkomið. Unnið er að því að fá löndin á Balkanskaga með, þau eru hluti af evrópsku fjölskyldunni.

CPME er í hópi frjálsra félagasamtaka og rekur skrifstofu í Brüssel í samræmi við vilja aðildarfélaganna en um 90% læknafélaga álfunnar studdu að komið yrði á fót Domus Medica í Brüssel í stað þess að flytja starfsemina milli landa á tveggja ára fresti við forsetaskipti. Samstarf CPME einkum við önnur læknasamtök á vettvangi Evrópu er mikið.

Fjórar undirnefndir starfa innan CPME eins og áður. Nýr formaður siðfræðinefndar, er Dr. Janbu frá Noregi, formaður norska læknafélagsins. Dr. Podmanicky frá Ungverjalandi tók við nefnd um fyrirbyggjandi læknisfræði, Daniel Mart fráfarandi forseti er nýr formaður nefndar um skipulag heilbrigðisþjónustu og Dr. Stehlikova frá Tékklandi stýrir nefnd um læknanám.

 

CPME – ESB

Þriðjungi af fjárhagsáætlun CPME er varið í kynningarstarf og bein/óbein afskipti af öllu því sem viðkemur heilbrigðismálum og málefnum sem lækna getur varðað um á borði Evrópusambandsins. Árangur þar af verður að teljast góður. Framámenn hjá ESB hafa komið á fundi CPME og haldið þar ræður og erindi, nú síðast kommissarinn Kyprianou sem ávarpaði aðalfund samtakanna í október 2007. Þann fund sótti nýkjörinn formaður LÍ, Birna Jónsdóttir, ásamt mér og var afar ánægjulegt þegar fjölgaði í íslenzku sendinefndinni.

 

Lyfjamál

Samskipti við lyfjaiðnaðinn eru ofarlega á dagskrá. Hvernig á að koma upplýsingum um lyf og lyfjameðferð á framfæri við almenning? Iðnaðurinn vill taka þátt í slíkri upplýsingagjöf og heldur því fram að allir nema þeir megi setja hvaða upplýsingar sem er á netið. Mikil andstaða hefur verið gegn því að breyta þessu vegna hættu á að þetta verði auglýsingar til almennings. Í Svíþjóð er heimasíðan www.fass.se með stífum reglum og eftirliti, yfirvöld bera ábyrgð á að uppfæra hana sem er mikil vinna og erfið. Heimsóknir munu vera 4-5 milljónir á mánuði.

Hjá IMI (Innovative Medicines Initiatives) eru grunnrannsóknir á lyfjum áður en af samkeppni um lyfjaframleiðslu verður. Þar er boðið upp á myndarlega styrki sem fjármagnaðir eru með framlagi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Iðnaðurinn leggur fram sömu upphæð á móti. Eftirlit er sameiginlega hjá framkvæmdastjórn ESB og EFPIA.

Mikilvægi samvinnu innan EMEA (European Medicines Agency) fer vaxandi. Á vegum EMEA vinna hátt í 450 manns, þar eru sex vísindanefndir. Sumir segja að 40 mismunandi yfirvöld í aðildarlöndum ESB hafi áður haft með lyfin að gera. Fara þurfti í gegnum flókið ferli í hverju landi fyrir sig þannig að augljóslega dregur þessi samvinna úr kostnaði. Einföldun á ferlinu kemur öllum til góða.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica