10. tbl. 94. árg. 2008

Umræða og fréttir

Fyrsta skóflustunga að Lækningaminjasafni Íslands

Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður, Anna K. Jóhannsdóttir, ritari Læknafélags Reykjavíkur og Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, tóku fyrstu skóflustunguna að byggingu Lækningaminjasafns Íslands að viðstöddu fjölmenni föstudaginn 5. september. Safnið mun rísa á safnasvæði Seltjarnarness við Nesstofu og verður miðstöð safnastarfsemi á sviði lækna- og heilbrigðisvísinda. Það mun bera ábyrgð á söfnun, varðveislu, rannsóknum og miðlun á þeim munum og minjum sem snerta sögu lækninga á Íslandi. Ráðgert er að Nesstofa, sem var reist á árunum 1761-1763 sem aðsetur Bjarna Pálssonar landlæknis, verði hluti Lækningaminjasafns Íslands.
Bygging og rekstur Lækningaminjasafns Íslands er samstarfsverkefni Læknafélags Íslands, Læknafélags Reykjavíkur, menntamálaráðuneytis, Þjóðminjasafns Íslands og Seltjarnarnesbæjar.

Kostnaður við bygginguna er áætlaður 393 m.kr. að frátöldum kostnaði við lóð og skiptist milli samstarfsaðilanna. Læknafélögin leggja til 25 m.kr. hvort auk þess sem söluandvirði fasteignarinnar að Bygggörðum 7 á Seltjarnarnesi rennur til framkvæmdarinnar, en fasteignin var keypt fyrir erfðafé Jóns Steffensen, prófessors emeritus, sem fól Læknafélagi Íslands umsjón með tilteknum eignum í erfðaskrá sinni og skyldi andvirði þeirra varið til byggingar lækningaminjasafns. Læknafélagið færði síðar Þjóðminjasafninu arfinn  til umsjónar. Matsverð eignarinnar er um 110 milljónir króna.

Seltjarnarnes leggur til 110 m.kr. auk lóðar og  menntamálaráðuneytið greiðir 75 m.kr. 

Safnbyggingin mun verða um 1600 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Á fyrstu hæð er gert ráð fyrir sýningar- og fundarsölum, kaffistofu og safnbúð auk skrifstofurýmis og bókasafns. Kjallarinn verður nýttur undir geymslur og tæknirými. Safnið mun jafnframt nýtast undir aðra menningartengda starfsemi Seltjarnarnesbæjar og á að vera risið árið 2010.
Seltjarnarnesbær hefur umsjón með byggingu hússins og Lækningaminjasafn Íslands verður starfrækt sem stofnun á vegum bæjarins.

Ásdís Helga Ágústsdóttir og Sólveig Berg hjá Yrki arkitektum ehf. hlutu fyrstu verðlaun fyrir hönnun safnhússins í opinni hönnunarsamkeppni sem fór fram árið 1997. Hönnun burðarvirkis, frárennslis-, hreinlætis- og hitalagna er í höndum VSB verkfræðistofu.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica