07/08. tbl. 94.árg. 2008

Umræða og fréttir

Nýtti valtímann í Perú og Nepal. Viðtal við Brynhildi Tinnu Birgisdóttur

Brynhildur Tinna Birgisdóttir nýtti valtímann sinn vel á 6. ári í læknisfræðinni í vetur. Hún fór fyrst til borgarinnar Cusco í Perú ásamt Sigríði Karlsdóttur og Árdísi Björk Ármannsdóttur en þar unnu þær á 900 rúma sjúkrahúsi í fjórar vikur. Síðan hélt hún til Nepal og hitti þar kærasta sinn, Sigurð Árnason, sem einnig er nýútskrifaður læknir og þar skiptu þau tíma sínum niður á milli þriggja staða, lítillar heilsugæslu í frumskóginum, sjúkrahúss í borginni Bharatpur og einkarekinnar heilsugæslu í Meghauli.

Brynhildur Tinna

"Þetta var stórkostleg reynsla og einstaklega lærdómsríkt," segir Brynhildur Tinna og lýsir aðstæðum á EsSalud sjúkrahúsinu í Cusco sem einföldum miðað við íslensk sjúkrahús, en þó sé greining og meðferð mjög svipuð og hér. "Meginmunurinn fólst í því að tækjabúnaður var mun eldri og fátæklegri. Engar tölvur, engir símar og engin píptæki. Notast var við hátalarakerfi á sjúkrahúsinu og það virkaði alveg ágætlega en allar skoðanir og viðtöl fóru fram meira og minna fyrir opnum tjöldum og einkalíf sjúklinga var nánast ekkert. Þetta sjúkrahús var ætlað opinberum starfsmönnum og starfsmönnum stórra fyrirtækja; fólki sem er með lágmarksjúkratryggingar. Lögreglumenn og hermenn njóta heldur betri sjúkratrygginga og efnafólk getur keypt enn betri þjónustu. Sjötíu prósent þjóðarinnar er hinsvegar utan sjúkratryggingakerfisins og þarf að borga fyrir allt. Þess sér stað í hærri mæðradauða en við eigum að venjast en allt að 500 konur af hverjum 100 þúsund deyja af barnsförum á landsbyggðinni í Perú. Barnadauði er einnig hár."

Hún segir að sér hafi komið nokkuð á óvart hvað læknisþjónustan hafi verið góð á EsSalud sjúkrahúsinu og meðferðin árangursrík. "Við vorum mikið til að meðhöndla sömu sjúkdóma og við þekkjum hér heima en oft lengra gengna en það sem var einna ólíkast voru orsakir sýkinga, til dæmis var niðurgangur nánast alltaf af völdum baktería og kvef eða barkabólga voru nánast aldrei látin ganga yfir án sýklalyfja."

Eftir dvölina í Perú hélt Brynhildur Tinna til Nepal þar sem hún hitti Sigurð Árnason og þau störfuðu um tveggja vikna skeið við pínulitla heilsugæslustöð í frumskóginum þar sem nánast ekkert var til af því sem maður á að venjast. "Þarna var ekki einu sinni skoðunarbekkur heldur bara tréborð og engin greiningartæki og fáein sýklalyf. Þetta var dálítið rosalegt. Við urðum að senda frá okkur marga sjúklinga sem þurftu frekari meðferð eða rannsóknir en það var heilmikið mál og alls ekki allir höfðu efni á því. Þarna var mikil fátækt. Af heilsugæslunni fórum við á sjúkrahús í Bharatpur í Suðvestur-Nepal þar sem leiðbeinandinn okkar Dr. Rana tók á móti okkur. Hann er taugalæknir og starfar á gjörgæsludeild sjúkrahússins. Þarna eru aðstæður allar mun frumstæðari en við eigum að venjast, sjúklingar liggja á opnum deildum og sýkingarhætta á milli þeirra er mikil. Sjúkratryggingakerfi í Nepal er ekkert og fólk þarf að borga læknisþjónustu fullu verði. Þarna sáum við ýmislegt sem tók verulega á einsog þegar fólk var að deyja einfaldlega vegna þess að það hafði ekki efni á meðferð. Við sáum einnig sjúklinga sem voru mun lengra gengnir í algengum sjúkdómum en gerist hér heima og fólk var að deyja úr sjúkdómum sem er auðvelt að meðhöndla á fyrri stigum. En þarna er líka verið að gera frábæra hluti og læknarnir eru mjög góðir og að vinna mjög athyglisverðar rannsóknir á sjúkdómum sem þeir þekkja frá fornu fari. Rannsóknir þeirra á háfjallaveiki eru til dæmis mjög athyglisverðar og einnig hafa þeir náð miklum árangri í rannsóknum á neurocysticercosis en þeir segjast ekki ná athygli vestrænna lækna og ekki fá inni í alþjóðlegum tímaritum með birtingar á rannsóknarniðurstöðum sínum. Þeir tóku einstaklega vel á móti okkur og sögðu við okkur að skilnaði: Ekki gleyma okkur."

Brynhildur Tinna segir að þetta hafi verið einstaklega lærdómsrík ferð og hún hafi lært mikið um greiningu sjúkdóma útfrá klínískum einkennum og teiknum því aðstæður til rannsókna hafi verið bágbornar. "Efst í huga er þó hversu vel maður kann að meta íslenska heilbrigðiskerfið eftir þessa heimsókn en einnig hvað læknar gera ótrúlega góða hluti við mjög erfiðar aðstæður."

Lyflækningadeild sjúkrahússins í Bharatpur.

Brynhildur Tinna Birgisdóttir útskrifaðist úr læknadeild Háskóla Íslands í vor með glæsilegum árangri.

Brynhildur Tinna, Sigríður Karlsdóttir og Árdís Björk Ármannsdóttir við inkaborgina Macchu Picchu í Perú.

Sigurður Árnason skoðar sjúkling á heilsugæslustöðinni í frumskóginum í Nepal.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica