06. tbl. 94. árg. 2008

Umræða og fréttir

Nýtt læknamet í maraþoni. Viðtal við Högna Óskarsson og Magnús Gottfreðsson

Fjölmargir úr hópi lækna stunda hlaup og aðra líkamsrækt sér til heilsubótar. Afreksmenn í íþróttum úr hópi lækna eru einnig margir þó ekki fari alltaf hátt. Högni Óskarsson geðlæknir setti Íslandsmet í maraþonhlaupi í New York árið 1977, hljóp á 2 klukkustundum, 49 mínútum og 14 sekúndum. Íslandsmetið var bætt jafnt og þétt á næstu árum þar til Sigurður P. Sigmundsson hljóp á 2.19:46 í Berlín 1985. Það met stendur enn.

En þrátt fyrir að læknar hafi verið á miklum spretti undanfarin ár hefur engum þeirra tekist að bæta tíma Högna fyrr en í Parísarmaraþoninu þann 6. apríl að Magnús Gottfreðsson hljóp á 2.48:16. Reyndar verður að taka fram að Jóhann Heiðar Jóhannsson á tíma upp á 2.41:24 í maraþoni sem háð var í Hafnarfirði 1982 en hlaupið fékkst ekki viðurkennt þar sem brautin var ekki mæld samkvæmt kúnstarinnar reglum og tíminn því ekki skráður í opinberar bækur.

u11-fig1

Læknablaðið fékk þá Högna og Magnús til að mæta til myndatöku og rifja upp þessi sögulegu hlaup. "Ég byrjaði að hlaupa maraþon þegar ég kom til Bandaríkjanna í framhaldsnám," segir Högni. Ég gerði tilraun ári síðar til að bæta þennan tíma í New York en ætlaði mér um of og fór of hratt af stað og galt fyrir það á lokasprettinum. Maraþonhlaup kallar á mikið skipulag og útsjónarsemi."

Undir þetta tekur Magnús og segir maraþon ekki síður andlega íþrótt en líkamlega. "Það skiptir miklu máli hvernig maður er stemmdur. Það er gríðarlega mikilvægt að vera jákvæður og hugsa gott til hlaupsins."

Högni segist ekki hafa hlaupið heilt maraþon í talsvert langan tíma en hleypur alltaf sér til heilsubótar. "Ég hleyp að jafnaði í kringum 40 kílómetra á viku. Um síðustu helgi gekk ég á Hvannadalshnjúk ásamt fleira fólki og hafði mikla ánægju af."

Aðspurðir um hvað sé framundan í hlaupunum segist Magnús vera búinn að skrá sig í New York maraþonið í haust. "Ég stefni nú ekki að því að bæta tímann frá því í París en mig hefur lengi langað til að hlaupa í New York. Það er víst mikil upplifun." Högni tekur heilshugar undir það, New York maraþonið sé einstakt í sinni röð, en hann segist ekki hafa ákveðið markmið í hlaupunum lengur. "Ég er ekki jafn ástríðufullur hlaupari nú og áður. Mig hefur reyndar lengi langað til að taka þátt í Laugavegshlaupinu, frá Landmannalaugum í Þórsmörk, en það verður ekki í ár, mér skilst að það sé uppselt."

"Þú verður að hlaupa Laugaveginn," segir Magnús. "Það er alveg ótrúlega skemmtilegt hlaup."

Niðurstaðan er einföld. Það er gaman að hlaupa.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica