06. tbl. 94. árg. 2008

Umræða og fréttir

Heiður að taka við formennskunni. Viðtal við Sigríði Snæbjörnsdóttur

Sigríður Snæbjörnsdóttir er nýskipaður formaður Krabbameinsfélags Íslands. Hún kveðst þessa dagana vera að setja sig inn í málefni félagsins, kynna sér gögn og sögu þess og ræða við starfsfólk og stjórnendur. "Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir Krabbameinsfélaginu og því starfi sem unnið er á vegum þess og það var mér mikill heiður að leitað var til mín um að taka við formennsku í félaginu af Sigurði Björnssyni," segir Sigríður sem gegnir starfi forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Sigríður Snæbjörnsdóttir

"Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur gert meira fyrir heilsufar íslenskra kvenna með skipuagðri brjósta- og leghálskrabbameinsleit en hægt er að gera sér grein fyrir í fljótu bragði. Nú er nýhafið átak til að beina sjónum að krabbameinum sem herja sérstaklega á karla og mér skilst að viðbrögð séu þegar orðin talsverð. Framundan er stórátak í skimun fyrir ristilkrabbameini í samstarfi margra aðila. Mér þykir einnig mikilsvert að sett hefur verið á laggirnar ráðgjafarstöð þar sem fólk getur leitað sér upplýsinga og ráðgjafar um hvaðeina sem lýtur að veikindum vegna krabbameins."

Sigríður telur að starfsemi félagsins á undanförnum árum og áratugum sanni að það hafi fetað brautina til góðs og unnið þarft verk í samfélaginu. "Það er alveg óumdeilt. Félagið nýtur mikillar velvildar og stuðningur almennings hefur verið ótvíræður þegar leitað hefur verið eftir honum í sérstökum söfnunarátökum vegna einstakra verkefna."

Hún nefnir Krabbameinsskrána sem ómetanlega heimild um heilsufar þjóðarinnar og frábært tæki til rannsókna og vísindaverkefna. "Krabbameinsskráin er í þeim skilningi eins konar flaggskip félagsins. Á vegum Krabbameinsfélagsins starfar mjög hæft fólk, sem kann vel til verka og fylgist vel með."

Sigríður nefnir að lokum hversu mikilvægu hlutverki Krabbameinsfélagið gegni í fræðslu og forvörnum gegn krabbameini þar sem meðferð og lækningar hafi gerbreyst og batalíkur séu verulegar í fjölmörgum tilfellum. "Það sem skiptir mestu máli í því sambandi er að almenningur sé vel upplýstur um mikilvægi þess að krabbameinin séu fundin og meðhöndluð sem allra fyrst og að því hlýtur starfsemi Krabbameinsfélagsins að miða á hverjum tíma. Árangurinn fram að þessu er ótvíræður."



Þetta vefsvæði byggir á Eplica