02. tbl. 94. árg. 2008

Hugleiðing höfundar. Þrívíddar-veruleikinn. Halldóra Kristín Thoroddsen

Halldóra Kristín ThoroddsenEf við skiptum manninum í þrennt, ná hefðbundin raunvísindi aðeins til eins þriðjungs. Maðurinn á sér innra líf og svo tekur hann þátt í samlíðan heildar (siðferði eða menningu). Þá stendur eftir hlutur hefðbundinna raunvísinda: ytri veruleikinn, mælanlegt ástand hegðunar eða forms. Með öðrum orðum: ég, við og það. Þessi skipting tekur raunar til alls veruleikans en það er lengri saga. Sumir heimspekingar tala um: list, siðferði og þekkingu. Eða: hið fagra, hið góða og hið sanna, sem allt er samofið og má ekki sundur slíta. Læknavísindin geta lýst limbíska kerfinu í smáatriðum, hlutum þess, lífeðlisfræði, þróunarsögu, hvernig og hverju það tengist. Kannski er þess getið að það hýsi sérstakar grunntilfinningar ... eitthvað sem hefur með árásargirni, kynhvöt, ótta og þrár að gera, hvort sem um hund eða mann er að ræða. En útlistanir á þessum tilfinningum er auðvitað ekki að finna innan raunvísinda, því þær taka til innri reynslu eða vitundar sem hlutlæg vísindi hafa ekki aðgang að, því aðferðir þeirra duga ekki til. Ef okkur líður illa á sálinni getum við tekið inn pillur sem hafa áhrif á boðefni en leysa ekki úr tilfinningaflækju okkar.

p02-fig2Eins og lesanda er eflaust farið að gruna er ég að tala um jafnvægi. Að meðhöndla heila manneskju, ekki þriðjung hennar. Þetta er ekki frumleg umræða því lengi hafa vestræn læknavísindi legið undir því ámæli að afneita tveimur þriðju hluta mannsins í hroka sínum. Umræðan á ekki að snúast um að læknavísindin slaki á kröfum um hlutlægni, slíkt væri fásinna. Skottulæknirinn lætur sér ekkert óviðkomandi, ég frétti til dæmis af konu hér í bæ sem hvíslar að krabbameini, með góðum árangri að eigin sögn. Ég mundi ekki leita til hennar með mein mín og léti heldur ekki húðlækni fúska við sál mína eða félagsleg vandamál, nema innan almennra marka. Hins vegar þurfa læknavísindin að viðurkenna takmörk sín og áframsenda sjúklinginn í félags- og tilfinningalegar sneiðmyndir. Er ekki stórhættulegt að skilja veika mannveru eftir í höndunum á kerfi sem meðhöndlar aðeins þriðjung fyrirbærisins?

Þessi sundurgreining veruleikans er tiltölulega ný. Vísindin tóku stökk í þekkingarleitinni einmitt þegar þessi sundurgreining átti sér stað. En það stökk hefur kostað fórnir. Það sem við höfum rifið í sundur, okkur til skilnings, er nauðsynlegt að setja aftur saman í sína eiginlegu heild, við höfum aðgang að innviðunum eftir sem áður. Nú er kominn tími til að tengja.

Hér er ekki bara við heilbrigðiskerfið að sakast. Allur nútíminn er þrískiptur. Skólakerfið þyrfti að sinna öllum hliðum persónuþroska: siðferði, þekkingu og listum. Atvinnu- og fjármálalífið getur ekki lengur gengið blint og firrt á náttúruna, þar þarf að huga að siðferðisgrundvelli og svona mætti áfram telja. Þessi tenging hins sundurgreinda veruleika er brýnasta verkefni samtímans. Sú ferð er þegar hafin innan heilbrigðiskerfisins. Nefnd á vegum ráðuneytisins er að huga að geðheilsu. Heilsugæslan á Akureyri hefur sett sér markmið um heildræna sýn, lýðheilsustöð boðar hreyfingu og geðorðin tíu. Enn sem komið er eru þetta stöku einmanaleg hróp úr hornum en hugarfarsbreytingin er hafin. Hugmyndagrundvöllinn þarf þó að styrkja því breytingarnar þurfa að hafa miklu víðtækari tengingu að leiðarljósi en nú er unnið eftir. Svo dæmi sé tekið, er bara of bjánalegt að hlaupa til einskis eftir engu í hlaupagalla, eða eyða lunganum úr lífi sínu inni í ljótu táfýlugreni á hamsturhjóli. Hér þyrfti aðkomu borgarskipulags sem gerði fólki kleift að hlaupa á eftir strætó, með nothæfum almenningssamgöngum, eða stuðlaði að hverfisverslunum svo að fólk geti rölt út í búð. Heilbrigðiskerfið þarf nefnilega að verða pólitískara, með harmónískt líf að leiðarljósi. Afskorin geðorð og maraþon duga lítt, góð sem þau eru. Okkur vantar sameiginlega stefnuyfirlýsingu í samfélaginu.

Margir eiga nefnilega fjarska bágt í nútímanum. Í flóknum þrískiptum veruleika hefur félagsvefurinn trosnað og margir lifa einangruðu skjálífi. Sumir kunna enga aðra leið að saminu okkar en að kaupa og neyta og taka þannig þátt í andardrætti tímans. Tilfinningalífið hefur verið vanrækt. Fólk þarf leiðarvísi, gildin eru í endurskoðun og hlutverkin á reiki.

Kostnaður af slíku átaki yrði tímabundinn en mundi fljótlega létta á heilbrigðiskerfinu. Birtingarmynd óhamingjunnar er nefnilega ekki bundin við þann fjórðung þjóðarinnar sem glímir við geðraskanir. Andleg vanlíðan á sinn þátt í niðurbroti ónæmiskerfis og getur komið fram í formi aðskiljanlegustu kvilla.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica