12. tbl 93. árg. 2007

Umræða og fréttir

Málþing um hjartaendurhæfingu. Magnús R. Jónasson

 

 

Eftir hádegi mánudaginn 21. janúar 2008 verður haldið á Læknadögum Læknafélags Íslands málþing um endurhæfingu hjartasjúklinga. Tekist hefur að fá hingað til lands fjóra af þekktustu vísindamönnum á sviði hjartaendurhæfingar í Evrópu til að fjalla um efnið frá ýmsum sjónarhornum. Verður hér í stuttu máli gerð grein fyrir þeim og eru áhugasamir hvattir til að koma og hlusta og skiptast á skoðunum við þá í pallborði í lok málþingsins.

Hugo SanerDr. Hugo Saner er fyrstur á mælendaskránni. Hann er prófessor í hjartasjúkdómafræði við háskólann í Bern í Sviss og er yfirmaður hjartaendurhæfingarinnar við háskólasjúkrahúsið þar. Hann er mikill áhugamaður um forvarnir gegn hjartasjúkdómum og endurhæfingu hjartasjúklinga og er nú einn af ritstjórum European Journal of Cardiovascular Prevention and Rehabilitation. Hann nefnir sinn fyrirlestur „The impact of cardiac rehabilitation on morbidity and mortality in CAD patients: What evidence do we have?"

Hannah McGeeHannah McGee er prófessor í sálfræði í Dublin á Írlandi. Árum saman hefur hún haft mikinn áhuga á mati á lífsgæðum hjartasjúklinga og vitna rannsóknir hennar og skrif um það. Hún vinnur nú ásamt öðrum að gerð evrópsks mælitækis til að meta lífsgæði hjartasjúklinga (HeartQoL), sem lengi hefur vantað við rannsóknarvinnu. Efni hennar á málþinginu verður: „Quality of life assessment in cardiac populations".

image_optDr. Stephan Gielen er dósent við háskólann í Leipzig og yfirlæknir í hjartasjúkdómafræði við Herzzentrum í Leipzig. Hann hefur verið þátttakandi í öflugri rannsóknarstarfsemi í Leipzig og hann hefur meðal annars stundað rannsóknir á áhrifum þjálfunar á hjartabilaða. Hans erindi heitir: „Resistance exercise in patients with chronic heart failure – is exercise the key to prevention and treatment?"

Rainer HambrechtSíðastur á mælendaskránni er dr. Rainer Hambrecht. Hann er prófessor í hjartasjúkdómafræðum við háskólann í Leipzig og leiðir þar öfluga rannsóknarstarfsemi. Hann er sérstaklega þekktur fyrir rannsóknir sínar og skrif um áhrif þjálfunar á æðaþel kransæða hjá sjúklingum með kransæðasjúkdóma og hjartabilun. Hans framlag á þessu málþingi heitir „Exercise training and endothelial dysfunction in coronary heart disease and chronic heart failure. From molecular biology to clinical benefits". Allt eru þetta áhugaverð efni flutt af þeim sem fremst standa í rannsóknum og skrifum um þessi málefni í Evrópu. Eftir erindin verða pallborðsumræður með fyrirlesurum og fundarstjóri verður dr. Guðmundur Þorgeirsson, sviðstjóri lækninga á lyflæknissviði 1 á Landspítala.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica