07/08. tbl 92. árg. 2006

Umræða og fréttir

Læknar á hlaupum

Fyrirsögn þessarar greinar bendir nú tæplega til þess að stórfrétt sé í burðarliðnum því hvenær hafa læknar ekki verið á hlaupum í einhverjum skilningi. Myndin sem almenningur hefur af læknisstarfinu hefur einmitt þróast í þá átt að starf læknisins sé eilíft kapphlaup við tímann og mannslífum sé helst ekki bjargað nema þrír bráðaliðar séu á harðaspretti með sjúklinginn dauðveikan á ambúlantinum og læknateymið brokki andstutt við hlið hans, hrópi skipanir í allar áttir og fremji kraftaverk um leið.

Örstutt könnun á dagskrá sjónvarpsstöðvanna leiðir í ljós að minnsta kosti þrjá þætti sem birta þessa mynd af læknunum og eru þá ótaldir allir þeir þættir sem byggja á starfi meinafræðinga þar sem krukkað er í misjafnlega á sig komin lík með gríðarlega góðum árangri fyrir réttvísina. En það eru aðrar sögur sem kalla bara á venjulegan gönguhraða.

Hópurinn sem stundar langhlaup með góðum árangri og skýrum markmiðum fer sífellt stækkandi hérlendis sem annars staðar og þó engin vísindaleg rannsókn hafi farið fram á því hvort ein stétt umfram aðrar stundi hlaup sér til heilsubótar þá er ljóst að allmargir læknar eru öflugir hlauparar. Skemmst er minnast frétta af því að Höskuldur Kristvinsson skurðlæknir lauk Ironman þríþrautinni í Arizona í Bandaríkjunum nú í mars með góðum árangri, en þrautin felst í því að synda 3,8 km, hjóla 180 km og hlaupa síðan eitt maraþon 42,2 km. Þessu lauk Höskuldur á rúmum 16 klukkutímum og geri aðrir betur. Sannkallaður járnkarl hann Höskuldur. Þá er rétt að halda því til haga að fyrsta skráða árangur hérlendis í maraþonhlaupi á Högni Óskarsson geðlæknir er hann hljóp í New York maraþoninu 1976. Þarna á milli hafa fjölmargir fráir læknar komið við sögu enda öðrum betur upplýstir um gildi góðrar hreyfingar og tengsl hinna gömlu en ávallt gildu sanninda um heilbrigða sál í hraustum líkama.

Bræðurnir Oddgeir og Kjartan Gylfasynir unnu það einstæða afrek í Kaupmannahöfn þann 21. maí sl. að hlaupa báðir heilt maraþon. Þetta væri kannski ekki í frásögur færandi nema af því að Oddgeir þáði nýra af bróður sínum Kjartani og mun þetta vera einsdæmi í veröldinni að nýrnaþegi og nýrnagjafi hlaupi saman maraþon. Þeir bræður eru báðir starfandi tannlæknar í Reykjavík.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica