01. tbl 92. árg. 2006

Umræða og fréttir

Ný heimasíða Læknafélags Íslands

Heimasíða Læknafélagsins var opnuð í ársbyrjun 2003 og er þrátt fyrir stuttan líftíma orðin barn síns tíma enda þróun í heimasíðutækni gríðarlega ör. Hún hefur engu að síður nýst félaginu vel en þó ekki reynst eins mikið sameiningartól fyrir íslensku læknastéttirnar eins og hafði verið vonast eftir. Fáir læknar hafa tjáð sig á spjallrásum hennar og málefnin eftir því. Sérgreinafélögin hafa mörg hver óskað eftir heimasíðu til eigin nota og búast má við að menn séu virkari þátttakendur í vefsíðu sé vettvangurinn aðeins bundinn við kollega sem þeir umgangast reglulega.

Markmið nýrrar síðu

Okkur sem að heimasíðu LÍ stöndum var því ljóst að kominn var tími til að skipuleggja nýja síðu frá grunni. Samhliða því að vera almenn upplýsingaveita og samskiptavettvangur fyrir íslenska lækna mun sérgreinafélögum gert kleift að halda afmarkað utan um sitt efni og læsa því sem er viðkvæmt. Nú er óskað eftir fulltrúa úr hverri sérgrein til að sinna starfi sérgreinaritstjóra sem halda mun utan um félagsmenn, upplýsingaflæði og samskipti síns hóps. Þegar efni er vistað innan hópsins er jafnframt ákveðið hvort það skuli vera læst eða opið öllum félagsmönnum LÍ. Sé það opið birtist það jafnframt á almennum vettvangi síðunnar. Skrifstofa LÍ vistar einnig þar það efni sem varðar félagið allt. Með þessu er vonast til að sérgreinafélögin taki þátt í efnislegri uppbyggingu síðunnar og að félagsmenn geti auðveldlega fylgst með hvað er á seyði meðal kollega sinna. Möguleikarnir eru margir og spennandi. Til dæmis býður þetta form upp á að læknir geti ráðfært sig óformlega við sérgreinina þar sem allir geta fylgst með svarinu og lært af.

Gömul tól, ný tól

Fréttir, tilkynningar og umræður verða til staðar á heimasíðunni eins og áður en í endurbættu formi. Hægt verður að nota textasnið og myndskreytingar til að gera innihald efnisríkara. Umræður verða eins og áður segir ýmist afmarkaðar við hóp eða á almennum vettvangi. Notendur munu geta skrifað nafnlaust ef þess er óskað en ritstjóri mun þó geta rakið nafn höfundar til að fyrirbyggja misnotkun. Notendur geta gerst áskrifendur að umræðu og fengið tölvupóst þegar umræða er virk. Ritstjóri getur lokað innleggi sem þykir ómálefnalegt og jafnvel lokað notanda tímabundið frá umræðurás. Með þessu er vonast til að umræður verði opnar en jafnframt málefnalegar.

Nýtt tól er atburða­dagatal þar sem safnað verður saman upplýsingum um væntanlegar uppákomur. Þar sem sérgreinaritstjórar, auk almenns ritstjóra LÍ, vista efni inn á þetta dagatal er vonast til að það gefi góðar upplýsingar um það sem er á döfinni fyrir læknastéttina.

Félagatalið verður mun ítarlegara og gefur betri upplýsingar um sérhæfingu hvers læknis og auðvelt verður að fletta upp læknum eftir sérgrein eða læknanúmeri. Læknar hafa þá greiðan aðgang að upplýsingum um kollega, svo sem þegar tilvísanir eru gerðar.

Hvert sérgreinahorn mun hafa til umráða skráarsafn til að vista hvers konar skjöl. Geta menn þá geymt á síðunni efni eins og klínískar vinnuleiðbeiningar, myndskeið eða jafnvel hljóðskrár.

Ýmislegt fleira mun verða til staðar, svo sem ítarleg tölfræði heimsókna, orlofssíða, greiðslutól, kannanir og rafrænar umsóknir. Öll tól sem voru til staðar á gömlu síðunni verða þar áfram, til dæmis póstlistar og einkaskilaboð.

Öryggi

Nýjasta forritunartækni frá Microsoft (Asp.net) er byltingarkennd og gefur vefhönnuðum marg­falt fleiri og öflugri möguleika við gerð vefsíðna. Leyniorð notenda eru nú vistuð í svokölluðu "kóduðu" formi þannig að enginn getur lesið þau þegar þau hafa verið vistuð. Ef notandi gleymir leyniorði sínu þarf því að útbúa nýtt því engin leið er að endurheimta hið fyrra. Þá er allt efni nú geymt í öflugum SQL gagnagrunni og nánast ógjörlegt að brjótast inn á hann.

Útfærsla og tímaáætlun

Ný heimasíða verður áfram á sömu slóð, www.lis.is og verður tilbúin til notkunar í janúar. Eftir opnun verður safnað saman athugasemdum og ábendingum notenda hennar og hún fullmótuð eftir þeim.

Að lokum skal tekið fram að LÍ greiðir allan kostnað við heimasíðuna og not sérgreinafélaga af henni verða gjaldfrjáls. Ljóst er að hér er stórt og spennandi verkefni á ferðinni sem gæti, ef vel tekst til, brotið blað í sögu samskipta og upplýsingaflæði íslenskra lækna.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica