07/08. tbl. 91.árg. 2005

Umræða og fréttir

Katrín Fjeldsted varaforseti CPME

Um næstu áramót verða þau tíðindi í lífi Katrínar Fjeldsted að hún tekur við embætti eins af fjór­um varaforsetum Fastanefndar evr­ópskra lækna (skammstafað CPME). Þetta eru um leið tíðindi fyrir íslensk læknasamtök því þau hafa aldrei átt svo háttsettan fulltrúa í röðum evrópskra lækna.

Þegar Læknablaðið innti Katrínu eftir starfi hennar á vett­vangi CPME sagðist hún hafa verið fulltrúi LÍ á fundum nefnd­arinnar á sjötta ár. "Sendinefndirnar á þessum fundum eru misstórar, sum lönd senda allt upp í átta manns, en ég hef oftast verið ein," segir hún en bætir því við að nú muni það væntanlega breytast. "Ég mun nú sækja fundina sem varaforseti en LÍ getur þá sent annan fulltrúa með mér. En eftir sem áður höfum við eitt atkvæði eins og aðrar þjóðir."

Ráðgjöf til ESB

Fastanefndin gegnir veigamiklu hlutverki í samstarfi evrópskra lækna, ekki síst á vettvangi Evr­ópu­sam­bandsins. "Nefndin er ESB til ráðgjafar um öll mál sem lúta að heilbrigðisþjónustu. Hún fær til umsagnar mál sem Evrópuþingið er að fást við og rekur einnig talsverðan lobbíisma í höfuðstöðvum ESB. Þetta er ekki stór stofnun, starfsmenn eru innan við tíu," segir Katrín.

Undanfarin ár hefur CPME verið upptekin af stækkun Evrópusambandsins. "Þar hefur verið að ýmsu að hyggja, svo sem frjálsri för sjúklinga til að leita sér lækninga utan heimalandsins, gagnkvæmri viðurkenningu á réttindum lækna og samanburði á menntun þeirra svo fátt eitt sé nefnt. Þessi viðfangsefni snerta alla lækna því þau varða bæði réttindi okkar til að starfa í öðrum löndum og þær kröfur sem gerðar eru til framhaldsnáms lækna."

Nú sér fyrir endann á þeirri vinnu sem hlaust af stækkun ESB svo nú gefst kannski færi á að snúa sér að innri málum. "Það er nauðsynlegt að endurskipuleggja starfsemi Evrópusamtaka lækna eins og Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ fjallaði um hér í blaðinu fyrir nokkru. Fastanefndinni er ætlað að vera eins konar regnhlífasamtök en auk þeirra starfa önnur samtök, svo sem samtök heimilislækna, UEMO, og sérfræðinga, UEMS. Nefndin hefur reynt að stilla saman kraftana og tala einum rómi gagnvart ESB og það hefur gengið ágætlega. En komi upp ágreiningur milli hinna samtakanna gæti reynt á samstöðuna. Það hefur sem betur fer ekki komið upp enn."

Risaeðla á batavegi

Katrín segist hafa verið vöruð við því að starfið á vettvangi CPME væri ákaflega þunglamalegt, nefndin væri hálfgerð risaeðla og það tæki að minnsta kosti þrjú eða fjögur ár að hnika til kommu í samþykktum hennar. "Þetta hefur sem betur fer verið að breytast, ekki síst vegna þess að það hefur komið yngra fólk til starfa," segir hún.

Katrín var kjörin til tveggja ára en að því loknu er hægt að endurkjósa hana til tveggja ára í viðbót. Næstu tvö eða fjögur árin þarf hún því að sækja mánaðarlega fundi sem flestir fara fram í höfuðstöðvum nefndarinnar í Brussel. Aðalfundirnir eru hins vegar oftast haldnir í heimalandi forsetans sem nú er Svíþjóð en verður Lúxemborg frá og með næstu áramótum.

"Þarna fer fram umræða sem skiptir alla lækna máli, íslenska jafnt sem aðra. Þarna hefur til dæmis verið rætt um samskipti lækna við lyfja­fyrirtæki. Reyndar beitti CPME sér fyrir viðræðum milli lækna og samtaka lyfjafyrirtækja og lyfjaframleið­enda með það fyrir augum að eyða tortryggni og setja samskiptum lækna og lyfjafyrirtækja ákveðinn ramma sem hægt væri að hafa að leiðarljósi í aðildarlöndunum. Sá rammi hefur nú verið samþykktur af báðum aðilum, af læknum í apríl og lyfjaiðnaðinum í júní.

Um alla Evrópu og víðar eiga sér stað miklar hræringar í starfsumhverfi lækna og uppstokkun í heilbrigðiskerfinu er hvarvetna á dagskrá. Það er mikilvægt að læknar taki þátt í þeirri uppstokkun og að þeir beri saman bækur sínar. Þá geta þeir talað einni röddu og haft áhrif á ákvarðanir stjórnvalda," segir Katrín.

Nýi varaforsetinn hefur einnig komið málum sem varða Ísland á dagskrá hjá CPME. "Ég kom hnefaleikunum á framfæri við nefndina og hún samþykkti að senda Alþjóða ólympíunefndinni þau tilmæli að banna högg fyrir ofan viðbein í ólympískum hnefaleikum. Einnig hef ég lagt áherslu á umhverfismál, að læknar geri sér grein fyrir heilsu­spillandi mengun sem víða dregur úr hollustu vatns, andrúmslofts og annarra lífsgæða," segir Katrín Fjeldsted vara­forseti CPME að lokum.

Katrín Fjeldsted heimilislæknir og varaforseti Fastanefndar evrópskra lækna, CPME.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica