07/08. tbl. 90.árg. 2004

Umræða og fréttir

Glæsilegt orlofshús risið í Húsafelli

Fimmtudaginn 10. júní var nýtt orlofshús Læknafé­lags Íslands tekið í notkun en það stendur í landi Húsa­fells, nánar tiltekið syðst og vestast í skógin­um þar sem sumarhúsabyggðin er. Þrátt fyrir Húsa­fellspest safnaðist þar saman nokkur hópur lækna og starfsfólks sem vann að byggingu hússins og fagnaði tilkomu þessa glæsilega bústaðar sem eflaust á eftir að njóta mikilla vinsælda.

Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ tók fyrstu skóflu­stunguna að húsinu í nóvember á síðasta hausti og hann hefur tekið að sér að fóstra húsið fyrsta kastið. Þegar vígslan fór fram hafði hann dvalið þar í nokkra daga og prufukeyrt húsið og var ekki annað að heyra á honum en að það hefði staðist öll próf.

Húsið er rúmlega 70 fermetrar að stærð með stofu, þremur svefnherbergjum, eldhúsi og baðher­bergi en það síðastnefnda vakti mikla aðdáun gesta fyrir smekklega hönnun. Það á reyndar við um allt húsið sem er teiknað af verkfræðistofunni Víðsjá. Umhverfis allt húsið er sólpallur sem er á annað hundrað fermetra að flatarmáli og í honum að sjálf­sögðu heitur pottur. Húsið stendur í miðjum birki­skógi skammt frá ánni en sunnan við það eru kaldavermsl og lítil tjörn. Vestan við húsið er lítið rjóður sem hefur verið sléttað þannig að þar er hægt að tjalda eða sitja og njóta veðurblíðunnar. Við smíði hússins hefur þess verið gætt að hreyfihamlaðir geti farið allra sinna ferða um það.

Húsasmíðameistari og aðalverktaki við húsbygginguna var Eiríkur Ingólfsson en ýmsir undirverktak­ar sáu um einstaka verkþætti. Húsið stendur á leigu­lóð sem er í eigu Ferðaþjónustunnar Húsafelli en húsráðendur þar eru hjónin Bergþór Kristleifsson og Hrefna Sigmarsdóttir.

Það var ekki auðhlaupið að því að ná mynd af nýja bú­­staðnum fyrir trjágróðri og tókst ekki fyrr en verktakar lánuðu blaða­manni tröppur. Sólpallurinn umkringir allt húsið en dyrnar eru út úr baðherberginu svo aðgengið að heita pottinum er eins og best verður á kosið. Hér að ofan sést svo inn í eitt þriggja svefnherbergja í bústaðnum en húsið er allt klætt ljósri furu að innan.

Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ ávarpar gesti við vígslu nýja orlofsbústaðarins en húsið stendur við götuna Kiðárskóg og ber númerið 5.

Húsameistarinn Eiríkur Ingólfsson stendur hér á milli landeigendanna, hjónanna Hrefnu Sigmarsdóttur og Bergþórs Kristleifssonar.

Sólpallurinn veit að sjálfsögðu á móti suðri en skammt framan við hann er lítil tjörn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica