07/08. tbl. 90.árg. 2004

Kvef, sveppir og spakmæli

Munur á læknadeild og hinu neðra

  • Í hinu neðra sést einstaka maður brosa.
  • Maður þarf ekki að læra lífræna efnafræði til að komast þangað.
  • Maður nefnir það ekki einu sinni í æðiskasti að einhver væri betur kominn í læknadeild.
  • Maður þarf ekki að taka námslán til að komast í hið neðra.
  • Það er von til þess að maður geti sofið í hinu neðra.

 

Einkennandi fyrir starf lækna á slysadeild

 

  • Algengasta spurningin þegar verið er að taka sjúkrasögu:
    Hvað breyttist í kvöld sem gerði það að verkum að þú ákvaðst að leita á slysadeild sex (klukkustundum, dögum, vikum, mánuðum, árum) eftir að einkennin byrjuðu?
  • Sjúklingi með geðræn vandamál sem telur sig vera Krist er vísað inn í sama herbergi og annar sjúklingur er í sem telur sig vera Kölska.
  • Maður fer að efast um að ruglið í sjúklingi með ofskynjanir sé vitleysa.
  • Blindfullur 140 kílógramma klæðskiptingur í klefa 3 getur ekki hætt að biðja um símanúmerið heima hjá þér.

 

Á geðdeildinni

Geðlæknirinn við hjúkrunarfræðinginn sem hafði ný­lega skipt um vinnustað: Ég bið þig þess lengstra orða að segja bara að það sé mikið að gera hjá þér en ekki að þetta sé eins og á geðveikrahæli.

Lét sig vanta

Ímyndunarveikur maður var svo tíður gestur á slysadeild að tekið var eftir því sérstaklega eina vikuna að hann lét ekki sjá sig. Loks kom hann á ný og þá gat einn af læknunum ekki stillt sig og sagði:

"Maður hefur ekki séð þig lengi. Hvar hefur þú eiginlega verið?"

"Ég var svo ansans ári slappur í síðustu viku að ég komst ekki út úr húsi"  sagði sá ímyndunarveiki.

Eitt og annað um kvef

Ef þú nælir þér í kvef skaltu hringja í góðan lækni. Hringdu gjarnan í þrjá slíka ef þú vilt spila bridge.

"Guð-hjálpi-þér" breytir svo sem engu ef maður er kvefaður og hnerrar, en það er eins gott og hvað annað úr því læknavísindin hafa ekki fundið ráð sem dugar.

Framfarir í læknisfræði eru með ólíkindum. Áður fyrr þegar gömul húsráð voru notuð við öllu var sagt að kvef gengi yfir á tveimur vikum. Nú á dögum nýjustu tækni og vísinda með öllum þeim undralyfjum sem til eru lagast kvefið á hálfum mánuði.

Sveppir í matinn

Sjúklingurinn: "Læknir, læknir, hvað mundir þú gera, ef einhver hefði borðað eitraða sveppi?"

Læknirinn: "Ég hefði ráðlagt breytingu á matar­æði."

Fleyg orð frægra manna

New England Journal of Medicine greinir frá því að níu af hverjum tíu læknum sé sammála því að einn af hverjum tíu læknum sé bjáni. - Jay Leno

Það er komið upp nýtt vandamál. Læknar hafa upp­­lýst að karlar sýni ofnæmisviðbrögð við latexi í smokkum. Sagt er að viðbrögðin valdi svæsinni bólgu. Hvert er eiginlega vandamálið?
-Jay Leno

Reyndu alltaf að hlæja þegar þú getur. Það er ódýrt læknisráð. 
- Byron lávarður

Þar sem læknislistin er dásömuð er mannúðin einnig dásömuð. 
- Hippókrates

Ein af fremstu skyldum læknisins er að kenna al­­þýð­unni að nota ekki lyf. 
- Sir William Osler

Ég mundi gera hvað sem er til að verða ungur aftur nema stunda líkamsrækt, vakna snemma og haga mér sæmilega. 
- Oscar Wilde

Ég trúi því að hverjum einasta manni sé ætlaður tiltekinn fjöldi hjartslátta. Ég hef ekki hugsað mér að eyða þeim sem mér eru ætlaðir í að stunda líkamsrækt. 
- Neil Armstrong

Hlátur er nokkurs konar innra skokk. Hann ýtir við innri líffærum og eykur öndunartíðnina. Hlátur vekur miklar vonir. 
- Norman Cousins

Læknar ávísa lyfjum sem þeir kunna lítil deila á til að ráða bót á sjúkdómum sem þeir vita enn minna um í fólki sem þeir þekkja alls ekki neitt. 
- Voltaire

Trúðu aldrei því sem sjúklingur segir þér að læknir hafi sagt. 
- Sir William Jenner

Enginn, ekki einu sinni læknir, gefur nokkru sinni aðra skilgreiningu á því sem hjúkrunarkona á að vera en trú og hlýðin. Þessi skilgreining gæti alveg eins átt við um húsvörð. Hún gæti jafnvel átt við um hross. 
- Florence Nightingale



Þetta vefsvæði byggir á Eplica