Umræða og fréttir
  • 2004-05-u18-fig1

Broshorn 48. Af höfuðverk og flensusprautum

Ein að vestan

Eldri kona úr litlu þorpi á Vestfjörðum þar sem allir þekktu alla lét loks undan miklum þrýstingi í fjölskyldu sinni og fór í Leitarstöðina í krabbameinsskoðun í einni ferðinni suður. Kona þessi fór afar sjaldan til læknis og hlakkaði lítið til skoðunarinnar. Svo vildi til að læknirinn sem hún hitti átti rætur sínar að rekja til sama þorps fyrir vestan en hafði þó aldrei hitt konuna áður. Þegar konan var loksins komin í stoðirnar leit læknirinn sem snöggvast á læknisskýrsluna í þann mund sem hann gerði sig líklegan til að hefja skoðunina.

"Ég sé að þú ert að vestan," sagði læknirinn í þeirri von að konan gæti slakað svolítið á. Konan hrökk við og svaraði: "Hvernig í ósköpunum veistu það með því að horfa þangað sem þú horfir?"

Einn með höfuðverk

Maður kom til læknis vegna höfuðverkjar af verri tegundinni. Í tvær vikur hafði hann kennt sér meins og lítinn sem engan frið fengið fyrir verknum. Læknirinn skoðaði manninn nákvæmlega en fann ekkert óeðlilegt og tók því að spyrja manninn um lífshættina. "Reykir þú?" spurði læknirinn. "Nei," svaraði maðurinn. "Drekkur þú áfengi?" "Nei, snerti það ekki." "Borðar þú skyndibitafæði?" "Nei, ég er jurtaæta." "Ferðu eitthvað út á lífið, á kvennafar og þess háttar?" "Nei og aftur nei."

"Ég er búinn að komast að ástæðunni fyrir höfuðverknum," sagði læknirinn. "Geislabaugurinn er of þröngur á þér."

Örtröð í flensusprautur

Það var komið haust og heimilislæknirinn bjó sig undir að bólusetja sjúklinga sína gegn inflúensu. Þá kom fréttatilkynning frá heilbrigðisyfirvöldum um að von væri á sérlega slæmri flensu og samkvæmt venju við slíkar tilkynningar varð allt vitlaust á læknisstofunni. Læknirinn dó ekki ráðalaus og hengdi upp spjald í biðstofunni þar sem á var letrað: GANGIÐ VINSAMLEGAST AFTUR Á BAK INN TIL LÆKNISINS TIL AÐ SPARA TÍMA.

Læknanemi í prófi

Lalli læknanemi þráði ekkert heitar en að verða læknir. Hann var mjög stressaður fyrir prófið í barnalæknisfræði. Þegar hann kom að spurningunni "Nefnið þrjá helstu kosti brjóstamjólkur" átti hann í engum erfiðleikum með að svara:

1) hún inniheldur heppilegustu næringarefnin fyrir barnið

2) hún er án allra sýkla þar eð hún geymist í líkama móðurinnar.

En svo lokaðist Lalli læknanemi alveg. Hann varð órólegur, svitnaði og eyddi miklum tíma í að finna þriðja svarið. Að lokum krotaði hann á blaðið:

3) umbúðirnar eru mjög flottar.

Dýr tanndráttur

Sjúklingurinn: Hvað kostar að láta draga úr sér tönn?

Tannlæknirinn: Fimmtán þúsund krónur.

Sjúklingurinn: Fimmtán þúsund fyrir nokkurra mínútna vinnu?

Tannlæknirinn: Ef þú vilt get ég dregið tönnina úr þér löturhægt.

Ný manneskja

Hégómleg miðaldra kona fékk hjartaáfall og var flutt fárveik á sjúkrahús. Þegar verið var að stumra yfir henni á bráðamóttökunni fannst henni hún vera stödd á mörkum lífs og dauða. Henni fannst sem hún sæi Guð sinn og spurði hann hvort jarðvist hennar væri við það að ljúka. Henni var svarað að svo væri ekki og í rauninni ætti hún eftir að lifa í þrjátíu ár. Konunni fór síðan að batna og í ljósi upplýsinganna frá þeim sem öllu ræður ákvað hún að nota tækifærið úr því hún var á sjúkrahúsinu og láta framkvæma nokkrar lýtaaðgerðir á sér. Hún fékk sér andlitsupplyftingu, fór í fitusog, lét stækka á sér brjóstin og gera svuntuaðgerð á kviðnum.

Þegar hún gekk út af sjúkrahúsinu eftir síðustu aðgerðina varð hún fyrir sjúkraflutningabifreið sem kom aðvífandi á mikilli ferð og lést samstundis. Minnug þess sem henni hafði verið lofað gat hún ekki orða bundist þegar hún kom til himna: "Ég sem hélt að þú hefðir lofað mér þrjátíu árum í viðbót," sagði konan.

"Ég þekkti þig ekki aftur," var svarað.

Líkt með líkum

Kvensjúkdómalæknir sem þjáðist ekki af minnimáttarkennd, enda nýbúinn að fá sérfræðiréttindin, þurfti að leita til tannlæknis út af heiftarlegri tannpínu. Á meðan tannlæknirinn skoðaði skoltinn á lækninum lét hann þessi orð falla:

"Veistu, í rauninni eru störf okkar ákaflega lík."

Læknirinn settist upp. "Það held ég varla," sagði hann. "Mitt starf eru miklu flóknara og meira stressandi en þitt."

"Það getur vel verið," sagði tannlæknirinn, "en við segjum báðir sjúklingum okkar að leggjast á bakið og opna vel, ekki satt?"


Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica