Umræða fréttir

Ályktanir aðalfundar Læknafélags Íslands

Í júlíhefti Læknablaðsins eru birtar tillögur til ályktana á aðalfundi sem þá voru framkomnar. Sumar þeirra voru samþykktar óbreyttar og vísast um þær til síðasta blaðs en hér að neðan eru birtar þær ályktanir sem breyttust í meðförum aðalfundar eða voru lagðar fram á fundinum sjálfum.



Þrengt að sjálfstæðri starfsemi lækna

Aðalfundur Læknafélags Íslands, haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 22. til 23. ágúst 2003, lýsir áhyggjum sínum yfir tilhneigingu stjórnvalda að þrengja stöðugt möguleika lækna á sjálfstæðri atvinnustarfsemi.

Fundurinn minnir á stefnu Læknafélags Íslands, sem ítrekuð var á aðalfundi félagsins 2001:

"- að læknar séu frjálsir að því að stunda lækningar í eigin atvinnurekstri utan sem innan sjúkrastofnana án annarra takmarkana en þeirra, sem faglegar kröfur eða samningar við stjórnendur stofnana leyfa. Grundvöllur þessa er, að sjúkratryggðir njóti jafnræðis, hvort sem þeir fá læknisþjónustu á sjúkrahúsi eða utan þess og njóti tryggingaverndar Tryggingastofnunar ríkisins.

- að læknar njóti jafnræðis á vinnumarkaði og í atvinnurekstri og að ákveðnar sérgreinar læknisfræðinnar svo sem heimilislækningar séu ekki nánast útilokaðar frá verktöku fyrir sjúkratryggingarnar eins og nú er raunin."



Tölvusamband læknis og sjúklings

Aðalfundur Læknafélags Íslands haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 22. og 23. ágúst 2003 felur stjórn Læknafélags Íslands að mynda starfshóp sem mótar tillögur um hvernig nýta megi tölvusamband og símtöl á sem hagkvæmastan og öruggastan máta í samskiptum lækna og sjúklinga.

(Greinargerð er óbreytt frá því í júlíhefti Læknablaðsins.)



Öryggismál sjúklinga

Aðalfundur Læknafélags Íslands, haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 22. til 23. ágúst 2003, felur stjórn félagsins að móta stefnu í öryggismálum sjúklinga. Stjórnin leggi fram tillögur að stefnu fyrir formannafund LÍ 2004.



Klíník upplýsingatækni

Klínísk upplýsingatækni, fyrst og fremst rafræn sjúkraskrárkerfi og lyfjaumsýslukerfi, eru lykilverkfæri við að tryggja öryggi sjúklinga og styðja markvissa og hagkvæma meðferð.

Aðalfundur Læknafélags Íslands, haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 22. til 23. ágúst 2003 skorar á stjórnvöld að tryggja nú þegar fjárveitingu til uppbyggingar og samræmingar slíkra kerfa á heilbrigðisstofnunum í samræmi við stefnumótun heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis í upplýsingamálum.



Styrkur til rannsóknar

Að lokum samþykkti fundurinn eftirfarandi tillögu sem borin var fram að félögum úr Félagi kvenna í læknastétt. Með henni fylgdi lýsing á rannsókn sem hafin er í fjórum Evrópuríkjum - Svíþjóð, Noregi, Íslandi og Ítalíu - á heilsufari og starfsaðstöðu lækna á fjórum háskólasjúkrahúsum. Rannsóknin mun standa yfir í fimm ár og hefur Evrópusambandið heitið að styrkja hana með sex milljónum evra. Ályktun aðalfundar var á þessa leið:



Aðalfundur Læknafélags Íslands, haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 22. til 23. ágúst 2003, telur brýnt að rannsókn sú sem að ofan er lýst á heilsu og starfsaðstöðu íslenskra lækna verði gerð. Fundurinn samþykkir að veita allt að tveggja og hálfrar milljónar króna styrk til verkefnisins á tveimur árum og styðja auk þess alla framkvæmd þess sem frekast er kostur með afnotum af starfsaðstöðu félagsins.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica