Umræða fréttir

Broshornið 39. Af mænuástungu og peningasöfnun

Stutt og laggott

Hættu að hafa áhyggjur af heilsunni, þú tapar henni hvort eð er.



"Ég sagði lækninum að ég hefði fótbrotnað á tveimur stöðum og hann sagði mér að hætta að fara á þá staði."



"Ég var svo ófríður þegar ég kom í heiminn að fæðingarlæknirinn gaf mömmu minni kinnhest."



"Læknirinn lét taka röntgenmynd af höfðinu á mér, en það sást ekkert á henni."



Slæm reynsla af svæfingu

Nánustu ættingjar gamla mannsins söfnuðust saman við rúmið hans og biðu þess að hann vaknaði eftir skurðaðgerðina. Þegar öldungurinn vaknaði sagði hann skyldmennum sínum að hann vildi komast burt af sjúkrahúsinu eins og skot.

"Ég kæri mig ekki um að sjá nokkurn lækni framar," sagði hann við son sinn og það fór ekkert á milli mála að honum var full alvara.

"Hér eru eintómir skottulæknar," bætti hann við.

"En pabbi, af hverju talar þú svona? Læknarnir björguðu jú lífi þínu," sagði sonurinn.

"Ég get sagt þér það, drengur minn, þegar ég var inni á aðgerðarstofunni kom einn sem sagðist vera svæfingalæknir og bað mig að anda inn og anda út, anda inn og anda út."

"Og hvað?" spurði sonurinn.

"Sko, ég er nú ekki langskólagenginn maður," sagði sá gamli, "en hvernig í veröldinni á maður annars að anda?"



Mænuástunga

Eldri kona var lögð inn á sjúkrahús talin hafa æxli í höfðinu. Henni var tjáð að til þess að rannsaka hana frekar þyrfti að gera mænuástungu til að skoða mætti mænuvökvann. Ástungan reyndi talsvert á gömlu konuna og hún fór ekki leynt með að hún fyndi til. Hún leit upp fyrir sig og hvíslaði: "Hjálpaðu mér, í guðanna bænum hjálpaðu mér."

Læknirinn reyndi að róa konuna og sagði: "Þú verður að fyrirgefa mér, en ég er virkilega að reyna að gera mitt besta."

Þá lyfti sú gamla höfðinu og horfði með ísköldu augnaráði á lækninn um leið og hún hreytti út úr sér: "Ég var ekki að tala við þig."



Peningasafnari

Geðlæknirinn kynnti sig fyrir sjúklingi sem hann hafði aldrei hitt áður. Sjúklingurinn sem var miðaldra karlmaður var alveg sérdeilis fínn í tauinu og bauð af sér góðan þokka.

"Hvað getur þú sagt mér af sjálfum þér og hvers vegna kemur þú til mín?" spurði geðlæknirinn.

"Ég er haldinn þeirri þráhyggju að vilja safna peningum," sagði sjúklingurinn.

"Það er nefnilega það," sagði geðlæknirinn. "Ég tel nú mjög góða möguleika á að hjálpa þér að losna við þráhyggjuna, en það getur tekið mjöööööööög langan tíma og mörg viðtöl."



Geðlæknar á ráðstefnu

Geðlæknarnir og skólabræðurnir Einar og Magnús sem höfðu ekki séð hvorn annan svo árum skipti, enda búsettir hvor í sínu landi, hittust á Evrópuþingi geðlækna og tóku tal saman. "Hvað er erfiðasta tilfellið sem þú manst eftir?" spurði Einar.

"Því er fljótsvarað," sagði Magnús. "Ég var með sjúkling sem var alveg ótrúlega ímyndunarveikur. Hann trúði því að hann ætti vellauðuga frænku í Ameríku sem væri orðin fjörgömul og ætlaði að arfleiða hann að öllum eignum sínum. Hann beið og beið í daga, vikur, mánuði og ár eftir bréfi frá lögfræðingi konunnar. Hann fór varla út fyrir hússins dyr og gerði aldrei neitt annað en að bíða eftir þessu ímyndaða bréfi frá þessari ímynduðu frænku sinni. Ég sinnti manninum í átta ár," sagði Magnús.

"Og hvernig endaði þetta svo?" spurði Einar.

"Ég lagði mikið á mig fyrir þenna sjúkling minn," sagði Magnús. "Ég sá hann margoft á stofu og þau voru ekki fá símtölin þar sem ég reyndi að stappa stálinu í hann. Eftir átta ár tókst mér loks að lækna manninn, en þá kom fjandans bréfið frá lögfræðingnum Ameríku."



Ein með hæsi

Maður nokkur sem læknirinn þekkti vel hringdi á stofuna og sagði: "Konan mín kemur varla upp nokkru orði og mér heyrist á öllu að hún sé komin með barkabólgu."

"Það er best að þú skutlist með hana til mín og þá get ég séð hvað ég get gert fyrir hana," sagði læknirinn.

"Svona okkar á milli var ég að vona að þú segðir mér hvernig ég gæti tafið fyrir bata hennar," sagði maðurinn.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica