Umræða fréttir

Af sjónarhóli stjórnar LÍ: Af menningararfinum og öðru brýnu

Það var ánægjulegt að lesa grein Auðólfs Gunnarssonar í 5. tbl. Læknablaðsins 2003 þar sem hann fullyrðir að ekki verði sagt "að Læknafélag Íslands hafi sinnt mikið sögu lækninga á Íslandi eða haft í heiðri minningu þeirra félaga sem rutt hafa brautina eða skarað fram úr á vissum sviðum." Auðólfur fór víða og áhuginn fagnaðarefni að sínu leyti, þó LÍ fengi nánast falleinkunn fyrir afskiptaleysi sitt af menningarmálum og sögu lækna og læknisfræðinnar. Lesa meira
 

Frá Félagi áhugamanna um sögu læknisfræðinnar og Þjóðminjasafni: Styrkur Jóns Steffensen

Á aðalfundi Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar 2001 var stjórn félagsins falið að leita samstarfs við Þjóðminjasafn Íslands um að félagið og safnið byðu í sameiningu fram styrk til háskólanema sem vildu skrifa námsritgerð um efni tengt sögu heilbrigðismála á Íslandi. Lesa meira
 

Vorfundur Alþjóðafélags lækna. Jón Snædal kjörinn formaður siðanefndar

Á vorfundi stjórnar Alþjóðafélags lækna (WMA) sem haldinn var í Divonne-les-Bains í Frakklandi dagana 15.-18. maí gerðust þau tíðindi að fulltrúi Læknafélag Íslands sigraði í kosningum um formennsku í einni af þremur fastanefndum samtakanna. Lesa meira
 

Viðbúnaður við HABL

Í febrúarmánuði 2003 fóru að berast fréttir um áður óþekktan smitsjúkdóm í Guangdonghéraði í Kína (1) sem veldur óvenjulegri lungnabólgu. Sjúkdómur þessi gengur undir nafninu Severe Acute Respiratory Syndrome (SARS) en á íslensku hefur hann verið nefndur heilkenni alvarlegrar bráðrar lungnabólgu (HABL). Lesa meira
 



Flýtival


Þetta vefsvæði byggir á Eplica