Þegar heimilislæknar horfa um öxl til nýliðins árs verður þeim ljóst að það ár einkenndist af baráttu fyrir réttindum og tilveru stéttarinnar. Þessi barátta heimilislækna hefur staðið lengi en náði vissu hámarki á árinu í kjölfar þess sem heilsugæslulæknar upplifðu sem aðför að kjörum sínum þegar reynt var að taka af þeim vottorðagreiðslur.
Lesa meira
Ljóst er að Læknadagar hafa fest sig í sessi sem helsta samkoma íslenskra lækna á ári hverju. Mikil þátttaka er í þeim og þrátt fyrir þá ákvörðun Fræðslunefndar að innheimta þátttökugjald í fyrsta sinn mætti á sjötta hundrað lækna til að hlýða á erindi, sýna sig og sjá aðra.
Lesa meira
Meðal gesta á Læknadögum var norski læknirinn Magne Nylenna. Hann var um árabil ritstjóri norska Læknablaðsins en flutti sig um set í fyrra og gegnir nú stöðu framkvæmdastjóra Norska læknafélagsins.
Lesa meira
Í barna- og unglingageðlækningum er unnið með alþjóðlega viðurkenndar læknisfræðilegar aðferðir, staðla og viðhorf við greiningu, fyrirbyggingu og meðferð á geðröskunum fólks undir 18 ára aldri.
Lesa meira