Umræða fréttir

Frá Landlæknisembættinu. Erlendar klínískar leiðbeiningar

Stýrihópur um klínískar leiðbeiningar

Í tilefni þess að nú eru tæp þrjú ár frá því vinna við klínískar leiðbeiningar hófst á vegum Landlæknisembættisins viljum við kynna þær erlendu stofnanir sem við teljum skara fram úr á þessu sviði. Í öllum tilvikum standa heilbrigðisyfirvöld að stofnununum og meginmarkmið þeirra er að bæta gæði, auka skilvirkni (effectiveness) og jafnræði í heilbrigðisþjónustu með gerð, kynningu og hagnýtingu (implementation) á klínískum leiðbeiningum sem byggja á gagnreyndri læknisfræði (evidence based). Sjúklingum/almenningi og heilbrigðisstarfsfólki eru veittar áreiðanlegar leiðbeiningar um "bestu vinnubrögð" (best practice) á hverjum tíma. Í sumum tilvikum standa stofnanirnar líka að þjálfun heilbrigðisstarfsfólks í gerð og kynningu á klínískum leiðbeiningum. Vonumst við til að læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk geti sótt gagnlegar upplýsingar á þessa staði þótt listinn sé ekki tæmandi.



Statens beredning för medicinsk utvärdering (SBU) var stofnuð 1978 í þeim tilgangi að vinna gagnrýnið úr rannsóknum á heilbrigðistækni. Mat þeirra nær bæði til nýrrar tækni og tækni sem er í almennri notkun innan heilbrigðisgeirans. Yfir 50 skýrslur hafa verið birtar eftir útgáfudagsetningu á

www.sbu.se/admin/



New Zealand Guideline Group var stofnað 1996 með það að meginmarkmiði að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í gerð og kynningu gagnreyndra klínískra leiðbeininga. Á árunum 1998 til 2002 hafa verið birtar um 40 leiðbeiningar og er þeim raðað í efnisröð. Sjá

www.nzgg.org.nz/library.cfm



United States Preventive Services Task Force (USPSTF) í Bandaríkjunum eru þverfagleg samtök sem vinna að gerð og útbreiðslu klínískra leiðbeininga sem byggja á gagnreyndri læknisfræði.

odphp.osophs.dhhs.gov/pubs



National Health and Medical Research Council (NHMRC) í Ástralíu eru þverfagleg samtök sem vinna meðal annars að gerð og útbreiðslu klínískra leiðbeininga sem byggja á gagnreyndri læknisfræði. Yfir 40 leiðbeiningar hafa verið birtar eftir útgáfudagsetningu á

www.health.gov.au/nhmrc/publications/

Canadian Task Force on Preventive Health Care (CTFPHC www.ctfphc.org/) sem var stofnað 1976 hefur þróað mjög fágaða aðferðafræði við mat á gæðum rannsókna sem nota á við gerð klínískra leiðbeininga. Aðferðafræði þessi er meðal annars notuð af United States Preventive Services Task Force sem einnig hefur náið samstarf á öðrum sviðum við CTFPHC. Nú er búið að vinna leiðbeiningar um yfir 200 heilbrigðistengd efni.



The Scottish Intercollegiate Guidelines Network (SIGN) sem var stofnað 1993 og myndar þetta net fjöldi lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna. Öll læknafélög og sérgreinafélög í Skotlandi eiga fulltrúa þarna, auk fulltrúa frá hjúkrunarfræðingum, lyfjafræðingum, tannlæknum og öðrum starfsgreinum sem tengjast heilbrigðismálum. SIGN hefur þegar birt 64 leiðbeiningar. Sjá lista í birtingarröð á

www. show. scot.nhs.uk/sign/guidelines



National Institute for Clinical Excellence (NICE) var stofnað í apríl 1999 sem sérstök heilbrigðisstofnun (Special Health Authority) fyrir England og Wales. Stofnunin er hluti af National Health Service (NHS) og stendur að útgáfu annars vegar á klínískum leiðbeiningum (níu birtar) og hins vegar heilbrigðistækniúttektum (health technologies (including medicines, medical devices, diagnostic techniques, and procedures)) sem nú eru rúmlega 50 talsins og má nálgast á

www.nice.org.uk



Guideline Development Department, Dutch Institute for Healthcare Improvement (CBO) www. cbo.nl/. Yfir 50 skýrslur hafa verið birtar en einungis á hollensku enn sem komið er. Sjá

www.cbo.nl/product/richtlijnen/





Vakin er athygli á að með því að nota vefútgáfu Læknablaðsins er auðvelt að smella beint á slóðirnar til að komast á viðkomandi heimasíður.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica