Umræða fréttir

Af sjónarhóli stjórnar: Á að auglýsa allar stöður lækna?

Fram að þessu hefur það ekki þótt sýna mikla stéttvísi að varpa þessari spurningu fram enda lengi verið baráttumál lækna að allar stöður séu auglýstar og af hverju að breyta því? Lesa meira
 

Stjórnarskipti hjá Læknafélagi Reykjavíkur

Stjórnarskipti fóru fram í Læknafélagi Reykjavíkur (LR) á aðalfundi félagsins fimmtudaginn 14. mars sl. Kosið var í stjórn og meðstjórn félagsins og fulltrúar og nefndir skipaðar. Úr stjórn gengu Ólafur Þór Ævarsson, Margrét Georgsdóttir og Runólfur Pálsson. Úr meðstjórn gengu Georg Steinþórsson, Kjartan B. Örvar, Margrét Oddsdóttir og Samúel J. Samúelsson. Lesa meira
 

Skiptir máli fyrir lækna að þetta takist

Í byrjun mars opnuðu læknarnir Guðbjörn Björnsson og Sverrir Jónsson læknastofu í Kópavogi og nefndu hana Læknalind. Þessi stofa er frábrugðin öðrum einkareknum stofum að því leyti að eigendur hennar hafa ekki gert samning við Tryggingastofnun ríkisins um kostnaðarþátttöku heldur byggist starfsemi stofunnar á því að fólk skráir sig í "áskrift" og greiðir fast mánaðargjald. Í staðinn fá sjúklingar tryggingu fyrir þjónustu læknis samdægurs ef þeir hringja fyrir kl. 14. Lesa meira
 

Sjálfsagður réttur lækna að nýta lækningaleyfið

Eins og fram kemur í umræðum um stofnun Læknalindar er þar farið inn á nýja braut í fjármögnun heilbrigðisþjónustu. Íslenskir læknar hafa hingað til aðhyllst það sem meginreglu að ríkið greiði fyrir þjónustuna þó svo að reksturinn sé í mörgum tilvikum í höndum einstaklinga eða fyrirtækja í einkaeigu. Í Læknalind er stigið einu skrefi lengra og almenningi boðið upp á einskonar einkasjúkrasamlag. Læknablaðinu lék forvitni á að vita hver væri afstaða Sigurbjörns Sveinssonar formanns Læknafélags Íslands til þess rekstrarforms sem þarna er bryddað upp á. Lesa meira
 



Flýtival


Þetta vefsvæði byggir á Eplica