Fræðigreinar

Nýgengi og greining meðfæddra hjartagalla á Íslandi 1990-1999

Inngangur: Talið er að eitt prósent lifandi fæddra barna hafi meðfædda hjartagalla. Þekking á nýgengi meðfæddra hjartagalla er mikilvæg vegna hættu á hjartaþelsbólgu hjá sjúklingum með hjartagalla og til að komast megi nær raunverulegum orsökum þeirra. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna nýgengi og tegundir meðfæddra hjartagalla á Íslandi á árunum 1990-1999. Sambærileg rannsókn var gerð hérlendis á árunum 1985-1989. Nýgengi meðfæddra hjartagalla í þessari rannsókn var borið saman við þá fyrri og sambærilegar erlendar rannsóknir. Lesa meira
 

Aukaverkanir og milliverkanir náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna

Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna fjölda aukaverkana og milliverkana sem rekja má til neyslu náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna hér á landi. Markmiðið var jafnframt að kanna viðhorf lækna á Íslandi til þessara efna. Lesa meira
 

Notkun blóðþynningarlyfja hjá sjúklingum með gáttatif á Íslandi

Ágrip Inngangur: Sjúklingar með gáttatif eru í aukinni hættu á að fá segarek sem oft hefur slæm áhrif á lífsgæði þeirra og horfur. Nokkrar stórar rannsóknir á undanförnum árum hafa sýnt fram á að blóðþynning með warfaríni getur dregið talsvert úr hættu á segareki hjá þeim sem hafa gáttatif án lokusjúkdóms. Lesa meira
 

Klínískar leiðbeiningar

Fyrri hluti þessara leiðbeininga birtist hér, þ.e. sá hluti er lýtur að minniháttar höfuðáverkum. Fjallað er um líkur á höfuðkúpubroti og heilaskaða eftir áverka, þýðingu minnkaðrar meðvitundar og þörfina fyrir frekari rannsóknir, og þá sérstaklega tölvusneiðmyndir (CT). Rætt er um útskrift eftir skoðun eina saman og hvenær þörf sé á innlögn, ráðgjöf heila- og taugaskurðlæknis eða flutningi á heila- og taugaskurðlækningadeild. Lesa meira
 



Flýtival


Þetta vefsvæði byggir á Eplica