Þann 22. febrúar 2002 varði Helga Hannesdóttir doktorsritgerð sína við háskólann í Turku í Finnlandi. Ritgerðin ber heitið: Studies on child and adolescent mental health in Iceland. Doktorsritgerðin var unnin undir handleiðslu tveggja prófessora í barna- og unglingageðlæknisfræði, þeirra Andre Sourander og Jorma Piha. Andmælandi ritgerðarinnar var prófessor Eila Räsänen frá University of Kuopio, Finnlandi. Ritdómendur frá hendi læknadeildar í Turku voru prófessor Irma Moilanen og dósent Eeva Aronen. Þetta er fyrsta doktorsritgerðin sem íslenskur læknir ver í barna- og unglingageðlæknisfræði.
Lesa meira