Umræða fréttir

Broshornið 16. Af sondu og brjóstamjólk

Magasonda

Bandarískur læknir starfandi á Íslandi var að kenna læknanemum hvernig magasonda var þrædd ofan í sjúkling. Læknirinn talaði góða íslensku og var auðskilinn, en orðalagið átti til að vekja athygli. Læknanemarnir fylgdust með af miklum áhuga hvernig læknirinn bar sig að. Það runnu hins vegar á þá tvær grímur og þeir litu hver á annan, þegar læknirinn snaraði hugsun sinni ("if the tube does not go the right way you may kill the patient") og sagði: "Ef slangan fer ekki rétta leið máttu drepa sjúklinginn."



Yfir og undir

Röntgenlæknir í Domus hafði samband við Broshornið. Eftir lestur óteljandi beiðna um röntgenrannsóknir veltir hann fyrir sér hvernig fólk geti haft "svima yfir höfði" og "verk undir ilinni"!



Í reykbindindi

Áslaug kom til heimilislæknisins, sem hún þekkti vel, og sagði sigri hrósandi: "Jæja, nú hef ég ekki reykt eina einustu sígarettu í þrjá mánuði og ekki bóndinn minn heldur."

"Og hvernig hefur svo gengið," spurði læknirinn.

"Bara vel. Við erum svo hugguleg, borðum saman og tútnum út bæði tvö."



Einn að westan

Læknirinn: "Þú átt aðeins eftir að lifa í sex mánuði."

Sjúklingurinn: "Ég get ekki borgað reikninginn."

Læknirinn: "Gott og vel, þá færðu sex mánuði í viðbót."



Læknaneminn og brjóstamjólkin

Lúðvík átti sér þann draum æðstan að verða læknir. Hann hafði stundað námið af samviskusemi og kveið í engu munnlega prófinu sem í vændum var, enda maðurinn vel lesinn. Þegar stundin rann upp átti hann að svara spurningunni: "Hverjir eru fjórir helstu kostirnir við brjóstamjólk?"

Án þess að hika svaraði hann: "Í fyrsta lagi inniheldur hún bestu blöndu næringarefna, sem völ er á fyrir barnið. Í öðru og þriðja lagi er hún varin fyrir sýklum í brjóstum móðurinnar og svo örvar mjólkin ónæmiskerfi barnsins."

Þegar hér var komið fraus allt fast hjá læknanemanum. Hann gat með engu móti fundið fjórða atriðið sem á vantaði. Hann fann svitann spretta fram á enninu og honum varð kalt á tánum. Loks fékk hann hugljómun mitt í angistinni og sagði: "Og svo kemur hún í svo flottum umbúðum."



Í veiðitúr

Skurðlæknirinn hringdi í konu sína frá spítalanum og sagði: "Sæl, elsku hjartað mitt. Það kom dálítið óvænt upp á. Ég hef fengið eitt af tækifærum lífsins. Mér er boðið í veiðitúr, sem tekur eina viku. Við veiðifélagarnir þurfum að fara alveg í einum grænum. Viltu vera svo elskuleg og taka fram veiðidótið mitt og pakka fötunum mínum. Ég vil gjarnan hafa bláu silkináttfötin með í ferðinni. Svo kem ég við heima eftir klukkutíma og kippi draslinu með mér."

Nokkru síðar renndi læknirinn við heima hjá sér, kippti farangrinum út í bílinn, kyssti spúsu sína á kinnina og rauk af stað.

Viku síðar kom læknirinn til baka. "Var þetta góð ferð hjá ykkur félögunum, elskan mín?" "Já hún var alveg frábær, en þú gleymdir að pakka niður bláu silkináttfötunum mínum, eins og ég hafði beðið þig um."

Konan brosti og sagði: "Ó nei, elsku krúttið mitt. Ég setti þau í veiðiboxið þitt."



Ég man þá tíð

Úr endurminningum barnalæknis:

"Stundum lá við að ég fengi mig fullsaddan á barnalækningunum. Þá var engu líkara en ég væri að stunda dýralækningar. Það var ákaflega algengt að sjúklingurinn gæti ekkert sagt mér. Oft og iðulega fylgdu sjúklingnum tveir yfirspenntir og óútreiknanlegir foreldrar, sem hötuðu læknanema og gengu berserksgang ef ég þurfti að draga blóð úr barninu eða setja upp vökva."



Úr endurminningum heimilislæknisins:

"Ef maður kynnist fjölskyldum náið verður uppskeran ríkuleg. Manneskjurnar hleypa lækninum inn í líf sitt og stundum alveg inn á gafl. Þannig lærir maður oft hvernig best er að haga sínu eigin lífi. Þessi tengsl hafa gagnast mér betur og betur með hverju ári. Þau koma hreinlega í veg fyrir að ég brenni út og eru ein aðalástæðan fyrir því að ég hef haldið það út að vera heimilislæknir."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica