Umræða fréttir

Broshornið 15. Brotnir fingur og skornir

Hljóðlaust og án lyktar

Eldri kona kom til læknis og bar sig illa.

"Þetta er alveg hræðilegt hjá mér, læknir minn góður. Ég er sífellt að leysa vind en sem betur fer er hann bæði lyktarlaus og hljóðlaus. Annars væri ég í vondum málum.

Ég er til dæmis búin að reka við 10 sinnum á meðan við höfum verið að tala saman en að sjálfsögðu veistu ekkert af því úr því það finnst hvorki lykt né heyrist hljóð." Læknirinn skrifaði upp á grænar pillur, sagði konunni að taka eina á dag og koma síðan á stofuna viku seinna.

Þegar konan kom aftur sagði hún: "Heyrðu læknir, það hefur nú orðið einhver breyting, en alls ekki til hins betra. Ég rek ennþá við út í eitt og það er alveg hljóðlaust eins og áður en nú er lyktin alveg hræðileg."

"Þá hefur mér tekist að ná úr þér nefstíflunni", sagði læknirinn "og þá er röðin komin að því að athuga í þér heyrnina."



Alverkja

Karl kominn af léttasta skeiði en þó alls ekki gamall kom til læknis. "Mig verkjar, þegar ég ýti hérna" (ýtir á síðuna) "og þegar ég ýti hérna" (ýtir á hina síðuna) "og hérna" (ýtir á lærið) "og hérna, hérna og hérna" (ýtir á hitt lærið og báða handleggina).

Læknirinn skoðaði manninn mjög nákvæmlega og fann loksins út eftir langa mæðu að maðurinn var puttabrotinn.



Náið samband

Loftur hafði verið heimilislæknir Þórdísar í áratugi og hafði gengið með henni í gegnum súrt og sætt. Samband læknisins og sjúklingsins einkenndist af gagnkvæmum skilningi og trausti.

Þórdís hafði verið eitthvað slöpp og Loftur ákvað að senda hana í blóðrannsókn. Þegar Þórdís hringdi til að spyrja hver niðurstaðan væri svaraði læknirinn:

"Hún er náttúrulega unaðsleg eins og manneskjan öll."



Getur spilað

Gutti kjötiðnaðarmaður kom á slysadeildina með nokkuð slæman skurð á vinstri löngutöng. Hann var strax drifinn inn á aðgerðarstofu þar sem tveir læknar lögðu á ráðin hvernig best væri að gera við fingurinn. "Haldið þið að ég geti spilað á píanó eftir þetta óhapp?," spurði Gutti. "Já, það á ekki að vera neitt vandamál. Við lögum þennan putta," sagði annar læknirinn og lagði sig í líma við að draga úr áhyggjum mannsins. "Það verður alveg stórkostlegt, því ég hef aldrei getað spilað á píanó," sagði Gutti.

Meiri hreyfing

Tveir menn tóku tal saman á biðstofu læknisins. Ekki leið á löngu þar til talið barst að krankleika og hinum ýmsu leiðum til betri heilsu.

"Ég sat mikið fyrir framan sjónvarpið og horfði á golf," sagði sá þreknari. "Læknirinn minn benti mér á að ég þyrfti meiri hreyfingu ef ég ætlaði að léttast. Þrátt fyrir breytinguna hef ég ekki léttst um eitt gramm."

"Og hvað hefurðu þá verið að gera?," spurði hinn.

"Ég hef verið að fylgjast með tennis í staðinn fyrir golfið."



Áfengi drepur

Læknanemarnir hlustuðu með andakt á dósentinn fræða þá um eituráhrif alkóhóls. Til þess að færa sönnur á mál sitt setti hann nokkra orma í krukku sem var full af vínanda. Eftir nokkrar sekúndur voru ormarnir dauðir.

"Eins og þið sjáið eru áhrifin augljós á þær lífverur, sem eru manninum óæðri" sagði dósentinn. "Hvaða áhrif haldið þið svo að alkóhól hafi á manninn?"

Læknanemi í öftustu röð rétti upp hendi og sagði: "Sá sem drekkur áfengi fær ekki ormaveiki."



Á spítala

"Pabbi er búinn að vera í heilan mánuð á spítalanum," sagði Lalli litli við kennara sinn.

"Það var leitt að heyra. Hvað amar að honum, Lárus minn?," spurði kennarinn.

"Ekki neitt. Hann er nýorðinn læknir."



Illt í maganum

Hinrik lá á spítala og var illt í maganum. Til að bæta gráu ofan á svart var algjört lystarleysi að gera honum lífið leitt. Hann gat með engu móti komið niður súpunni sem honum var færð í hádeginu, aftur um kvöldið og loks fyrir nóttina.

Morguninn eftir var hann vakinn til að fá stólpípu. Í því hringir systir hans og spyr Hinrik hvernig hann hafi það.

"O, ekki sem verst núna. En eitt skal ég ráðleggja þér, systir mín góð. Ef það á einhvern tímann fyrir þér að liggja að dvelja á þessu sjúkrahúsi skaltu fyrir alla muni borða súpuna þína, sama á hverju dynur, því annars vilja þau troða henni upp í afturendann á þér."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica