Umræða fréttir

Íðorð 138. Fótaóeirð

Jón Sigmundsson, barnalæknir, hringdi og vildi fá tillögu að íslensku heiti á restless legs syndrome. Læknisfræðiorðabók Dorlands lýsir fyrirbærinu þannig: djúplæg, óþægindatilfinning í kálfum við setu eða legu, sérstaklega rétt fyrir svefn, sem leiðir til óviðráðanlegrar löngunar til að hreyfa fæturna. Samheiti eru restless legs og Ekbom syndrome. Lýsingin í læknisfræðiorðabók Stedmans er heldur áhrifameiri: ólýsanleg óróatilfinning, kippir eða eirðarleysi, sem kemur fyrir í fótleggjum eftir að gengið er til hvílu og leiðir oft til svefnleysis; léttir tímabundið við að ganga um. Þar er að auki vísað í almenna samheitið akathisia. Um akathisia var fjallað í 102. pistli (Lbl 1998; 84: 596) og stungið upp á heitinu óeirð. Beinast liggur því við að nefna fyrirbærið fótaóeirð eða, ef menn vilja vera mjög nákvæmir, heilkenni fótaóeirðar.

Hreyfingaraskanir

Jón er nákvæmnismaður og lét ekki kyrrt liggja við þessa úrlausn. Hann bætti því við að sjúklingar með fótaóeirð gætu einnig haft sérkennilegar, ósjálfráðar útlimahreyfingar í svefni eða vöku. Slíkt nefnist periodic limb movements in sleep eða periodic limb movements while awake. Undirritaður sá ekki annan kost en að þýða þessar samsetningar nánast orðrétt: lotuhreyfingar (út)lima í svefni og lotuhreyfingar (út)lima í vöku. Að lokum lét Jón þess getið að útlimahreyfingar í svefni gætu valdið marktækum svefntruflunum og nefndist fyrirbærið þá periodic limb movement disorder. Hreyfingaraskanir voru fyrrum nefndar dyskinesias (ft.). Þá rifjaðist upp tillaga Þorkels Jóhannessonar frá 101. pistli (Lbl 1998; 84: 505), að nota orðhlutann -hreyfni til að þýða heiti sem táknuðu tegund eða eðli hreyfinga og enduðu á gríska orðhlutanum -kinesia. Movement disorder verður samkvæmt því hreyfniröskun og sennilega er óhætt að halda áfram og þýða alla samsetninguna lotuhreyfniröskun útlima.

Local, systemic

Hjördís Harðardóttir, læknir á sýkladeild Landspítala, hringdi og bað um tillögu að íslenskun á heitunum local treatment og systemic treatment.

Preload, afterload

Ásta Thoroddsen, hjúkrunarfræðingur, kom að máli við undirritaðan vegna heitanna preload og afterload. Hvorugt er að finna í Íðorðasafni lækna. Samkvæmt tiltækum læknisfræðiorðabókum var heitið ventricular preload notað um mældan blóðþrýsting í slegli við lok þanbils eða hlébils (diastole). Nú mun þetta vera útreiknuð stærð, skilgreind sem spennan í slegilvegg áður en samdráttur hefst. Ventricular afterload var á sama hátt notað um þann mælda slagæðaþrýsting sem dælt er á móti í slagbili (systole), en nú um útreiknaða spennu í slegilveggnum eftir að samdráttur hefst.

Ambulant

Ingunn Þorsteinsdóttir, læknir á meinefnafræðideild Landspítala, hringdi og var að leita að íslensku heiti til að tákna ambulant rannsóknir á rannsóknarbeiðnum. Undirrituðum kom þá ekkert betra í hug en utanspítalarannsóknir. Latneska sögnin ambulare merkir að ganga og "ambulant" sjúklingur er gangandi, andstætt við það að vera rúmliggjandi. Íðorðasafn lækna þýðir lýsingarorðið ambulant þannig: á fótum, fótavistar-, ferlivistar-. Notkunin hefur þó í seinni tíð takmarkast við það sem er utan stofnunar og ekki náð til sjúklinga sem hafa fótavist eða eru á ferli innan stofnunar. Lipurt væri nú að nota heitin ferlisjúklingar, ferlirannsóknir og ferliaðgerðir, og að láta heitið ferliverk ekki verða of sértækt.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica