Umræða fréttir

Broshornið 11: Með hellu og sjóveiki

Úr fötunum

Eldri kona kom til læknisins. Hann las yfir sjúkraskrá konunnar og sagði svo:

"Jæja, Guðrún mín, nú ætla ég að biðja þig að fara úr fötunum."

"Ég veit ekki hvort ég ætti nokkuð að vera að fara úr," sagði konan. "Maðurinn minn sálugi dó fyrir mörgum árum."

"Fyrirgefðu," sagði læknirinn, "en ég fæ ekki séð hvað það kemur málinu við. Ég bið þig vinsamlegast að fara úr fötunum."

"En læknir minn góður, ég hef lifað ein síðustu 15 árin."

"Guðrún mín, það skiptir ekki heldur neinu máli. Farðu nú úr fötunum og þá getum við hafist handa."

"Jæja, þá það," sagði konan, "en ég vara þig við. Þú ert að leika þér að eldi!"



Með hellu fyrir eyrum

Háls-, nef- og eyrnalæknirinn var að skoða konu á miðjum aldri, hún var búin að vera kvefuð í þrjár vikur og var komin með hellu fyrir eyrun. Læknirinn fann út að konan var með væga eyrnabólgu og ráðlagði henni að nota eyrnadropa úr því að bólgan væri svo lítil. Konan kom svo í annað sinn og loks í þriðja sinn á stuttum tíma og alltaf með hellu. Í þetta skipti hafði hún manninn sinn með sér.

"Ég er alveg að missa þolinmæðina. Nú verður þú að fara að gera eitthvað í málinu," sagði konan pirruð.

"Ég hef verið að reyna að gera það sem er þér fyrir bestu, frú mín góð," sagði læknirinn. Samt hef ég á tilfinningunni að þú sért óánægð með það sem ég hef gert fram að þessu."

Þegar hér var komið ræskti eiginmaðurinn sig, stóð upp og sagði:

"Það er svo undarlegt, læknir. Ég hef búið með henni í 18 ár og hef haft það sama á tilfinningunni allan tímann."



Eins og bjalla

Sjúklingurinn: "Ég get ekki losnað við þá undarlegu tilfinningu að ég sé bjalla."

Læknirinn: "Taktu þrjár af þessum töflum á dag og hringdu svo í mig, ef þú skánar ekki."



Af sjóveiki

Farþegi á skipi var illa haldinn af sjóveiki og leitaði því til skipslæknisins.

"Áttu ekki eitthvað til við þessum fjanda?" spurði farþeginn.

"Hafðu engar áhyggjur af þessu," sagði læknirinn. Það hefur aldrei neinn dáið úr sjóveiki."

"Þetta var illa sagt," stundi farþeginn. "Það hefur verið vonin um að deyja, sem hefur haldið í mér tórunni."



Hundatilfinning

Sjúklingurinn: "Ég verð nú að segja það læknir, að þessi tilfinning er orðin þreytandi að ég sé hundur."

Læknirinn: "Og hvað hefurðu haft þessa tilfinningu lengi ?"

Sjúklingurinn: "Ég er nú ekki alveg viss, en líklega frá því ég var hvolpur."



Skjálfandi hendur

Eldri karl, þrútinn í framan og angandi af brennivínslykt kom inn á heilsugæslustöð og bað um að fá að hitta lækni.

"Þú verður að hjálpa mér ljúfurinn því hendurnar á mér skjálfa svo rosalega."

"Hvernig er það eiginlega með þig maður, drekkurðu ekki dálítið ríflega?" spurði læknirinn.

"Nei," sagði maðurinn, "og það er nú einmitt vandamálið, að ég helli svo miklu niður."



Yfir og undir

Á röntgenstofu í borginni velta menn því fyrir sér hvernig þeim sjúklingum líði sem eru með "svima yfir höfði" og "verk undir ilinni". Allt er nú til!



Pipar og hnerri

Ung kona kom til læknis og bað um almenna læknisskoðun. Læknirinn fann ekkert athugavert og spurði hana hvort hún væri með áhyggjur út af einhverju sérstöku.

"Já, eiginlega er það dálítið sem ég er að velta fyrir mér," sagði konan.

"Og hvað er það?" spurði læknirinn.

"Í hvert skipti sem ég hnerra fæ ég kynferðislega örvun," sagði konan.

"Ja hérna," sagði læknirinn, "og hvað hefurðu gert við því?"

"Notað svartan pipar," svaraði konan.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica