Umræða fréttir

Broshorn 2: Ég endurtek, nýr vettvangur

Eins og lesendur síðasta tölublaðs Læknablaðsins (2/2000) geta séð hefur nýr pistill, Broshornið, hafið göngu sína. Þar gefst lesendum kostur á að koma á framfæri efni, sem líta mætti á sem læknaskop. Nú er tækifærið að taka fram skriffærin eða senda tölvupóst.

Góðir kollegar, sendið inn efni í bundnu máli eða óbundnu, myndir, teikningar eða hvað eina, sem þið teljið að geti laðað fram bros eða vakið kátínu. Látið ekki lítillæti eða hógværð hefta ykkur. Upp með húmorinn og verið með.



Sungið á árshátíð

Árshátíð LR var haldin með glæsibrag laugardaginn 22. janúar síðastliðinn á Broadway Hótel Íslandi. Allt hjálpaðist að til að gera fagnaðinn sem veglegastan; yfirdrifið nóg pláss í kringum tæplega 600 gesti, skrautsýning í veislufatnaði, myndarlegir veislustjórar (báðir), góð skemmtiatriði og dúndrandi fín stemmning svo fátt eitt sé upp talið. Bent hefur þó verið á eitt atriði, sem þolir skoðun og jafnvel breytingu fyrir næstu árshátíð. Hér er átt við fjöldasönginn, sem er alveg ómissandi þáttur í gleðskap sem þessum.

Þegar hefja átti upp raust var hið magnaða hátalarakerfi hússins notað til að kalla valinkunna söngfugla og söngunnendur upp á svið. Það virtist vera skilyrði fyrir því að fá að heyra nafn sitt hljóma um húsið að vera nokkurn veginn á miðjum aldri og hafa nokkrum sinnum eða jafnvel margoft tekið þátt í fjöldasöng á sviði áður, meira að segja á læknaárshátíðum. Og kemur nú að kjarna málsins. Hvers eiga þeir og þær að gjalda, sem hafa óendanlega sönghæfileika, meðfædda og áunna og uppfylltu ekki þau skilyrði, sem áður voru nefnd? Þessir lánlausu veislugestir misstu sumir hverjir af tækifæri lífs síns að vera kallaðir upp á svið svo allir í húsinu heyrðu. Bara það eitt að vera nefndur á nafn í slíku samhengi er viss viðurkenning á því að viðkomandi geti sungið. Pistilskrifari veit dæmi þess að svekkelsisvottur hafi verið í gangi allnokkru eftir að fjöldasöngnum lauk hvað þetta eina atriði varðar og meira að segja morguninn eftir árshátíðina, en ekki mikið lengur en það. Aðgát skal höfð...



Alltaf í boltanum

Valinkunnur lungnalæknir sat með tveimur löglærðum kunningjum sínum og fræddi þá um meingerð lungnaþembu. Hann lýsti því hve slæm áhrif tóbaksreykur hefði á "þessar örfínu lungnablöðrur, sem síðan spryngju og það hefur í för með sér að maður verður móður og úthaldslítill. Þessar breytingar verða tiltölulega snemma á ævinni hjá þeim sem reykja en maður sér þær einnig hjá fólki um nírætt, þó svo það hafi aldrei reykt." "Hvað gerir maður þá?" spurði annar lögfræðingurinn, en hvorugur þeirra hafði nokkru sinni reykt. "Ætli maður verði þá ekki bara að hætta í boltanum," svaraði hinn.



Morgunkaffið í rúmið

Læknishjón á efri árum voru nývöknuð og farin að huga að því að fara á fætur. "Má ég ekki færa þér kaffið í rúmið, elskan mín?" spurði eiginmaðurinn. "Jú, takk og mundu eftir mjólkinni. Er ekki annars best að ég skrifi þetta varðandi mjólkina á miða svo hún gleymist ekki?" sagði konan, minnug þess hve bóndi hennar var orðinn gleyminn. "Nei, það er algjör óþarfi, ég man þetta alveg," sagði eiginmaðurinn og fór fram í eldhús. Leið nú og beið, en loks birtist húsbóndinn með bakka og lagði hann á rúmið hjá konunni. Á bakkanum var rjúkandi egg og beikon, en ekkert kaffi. "Ég vissi að þú mundir gleyma brauðinu," sagði konan og byrjaði að borða.



Talandi um minnisleysi...

Sjúklingurinn: "Læknir, læknir, ég hef tapað minninu."

Læknirinn: "Hvenær gerðist það?"

Sjúklingurinn: "Gerðist hvað?"



Vekjaraklukkan

Maður nokkur kom æðandi inn á slysadeild og hrópaði: "Læknir, læknir, þú verður að hjálpa mér. Konan mín gleypti vekjaraklukku."

"Nú já, er þá ekki best að þú drífir hana inn?" spurði læknirinn.

"Ég get það ekki því hún er sofandi heima."

"Hvers vegna ert þú þá hér?"

"Af því konan beit mig, þegar ég reyndi að trekkja klukkuna."



Hálskirtlarnir

Tveir félagar sátu saman og ræddu um heilsuna.

"Ég held ég verði að fá mér nýjan háls-, nef- og eyrnalækni," sagði annar mannanna. "Veistu um einhvern góðan?"

"Þú meinar HNE-lækni," sagði hinn. "Þessi sem ég hef er alveg frábær."

"Hvað gerir hann svona frábæran?"

"Í fyrra, þegar til stóð að taka úr mér hálskirtlana hafði ég ekki ráð á allri aðgerðinni, þannig að hann losaði bara aðeins um kirtlana í staðinn fyrir lítinn pening."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica