Umræða fréttir

Íðorð 120: Ofnæmishneigð

Þorgeir Þorgeirsson, yfirlæknir á FSA, sendi bréf með hugleiðingu í tilefni af umræðu um heitið atopia í síðasta pistli. Honum er mikið niðri fyrir þegar hann segir: "Svo er að sjá sem fyrirbærið eða réttara sagt heitið ofnæmi sé enn að velkjast fyrir læknislærðum mönnum. Atopia heitir til að mynda ekki lengur ofnæmishneigð, heldur "bráðaofnæmishneigð". Hvað ber til? Málið ætti raunar löngu að vera útrætt."



Atopia, allergia

Hvað sem um það má segja, þá er ljóst að mörg heitin sem notuð eru í ónæmis- og ofnæmisfræðum hafa löngum vafist fyrir bestu mönnum. Á það ekki síður við um erlendu heitin en þau íslensku. Flest þau erlendu urðu til löngu áður en fræðimenn vissu nákvæmlega hvað lá að baki fyrirbærunum sem þeir voru að gefa heiti. Mörg heitin voru því almenn og gáfu ekkert sértækt til kynna. Skýringin í síðasta pistli á upprunalegri merkingu atopia sýnir það vel, fyrirbæri sem er undarlegt, framandi, skrýtið eða ókunnuglegt. Svipað má segja um heitið allergia. Það er komið úr grísku þar sem allos merkir annar eða annars konar og ergon merkir vinna eða starfsemi. Það gefur afar lítið til kynna að segja að allergia sé fyrirbæri með annars konar starfsemi í vef eða líffæri. Sagan segir þó að það heiti hafi verið sett fram árið 1906 af austuríska barnalækninum Clemens von Pirquet til að lýsa þeim sértæku viðbrögðum sem fram komu í húð hjá túberkúlín-(of)næmum einstaklingum. Með vaxandi þekkingu koma fram nýjar og oftast nákvæmari skilgreiningar á hugtökunum. Heiti, sem upprunalega voru mjög almenn og ógagnsæ, geta þannig að lokum fengið mjög þröngt og sértækt merkingarsvið.



Ofnæmi, ofurnæmi

Af þessu tilefni er sennilega ástæða til að ræða frekar um ofnæmi. Um forskeytið of- segir Íslensk orðabók Máls og menningar: meir(a) en hæfilegt er, úr hófi og um nafnorðið næmi er sagt: 1. námshæfileikar, það að vera næmur. 2. viðkvæmni gagnvart áhrifum. 3. í samsetn.: ónæmi, sóttnæmi, tilfinninganæmi. Til gamans má geta þess að elsta heimildin í ritmálsskrá Orðabókar Háskólans um notkun orðsins ofnæmi er frá 1922, úr bókinni Dulmætti og dultrú, þar sem það virðist koma fyrir í kaflaheiti: Ofskynjun og ofnæmi dáleiddra.

Íðorðasafnið notar orðið ofnæmi um enska heitið allergy. Íslensk orðabók Máls og menningar gefur tvær skýringar á ofnæmi. 1. það að þola ekki (verða veikur af) að neyta vissra fæðutegunda eða snerta tiltekin efni (ávexti, fiður o.fl.), þola jafnvel ekki nærvist þeirra án þess að veikjast (t.d. af exemi); 2. finnast e-ð alveg óþolandi. Þessi tilvitnun sýnir annars vegar almenna læknisfræðilega merkingu orðsins ofnæmi og hins vegar sérstaka (ekki sértæka!) tilfinningalega og næstum spaugilega notkun þess. Sértæka læknisfræðilega merkingin er svo sú sem birtist í Íðorðasafninu: "Sjúklegt ástand þar sem afbrigðileg ónæmisviðbrögð við ofnæmisvaka leiða til bólgu eða vefjaskemmda." Þessi lýsing getur átt við um allar tegundir ofnæmisviðbragða, frá bráðaofnæmi (immediate hypersensitivity) til síðkomins ofnæmis (delayed hypersensitivity).

Heitið hypersensitivity er venjulega notað sem samheiti við allergy, en hefur fengið íslenska heitið ofurnæmi í Íðorðasafni lækna. Forliðurinn ofur- hefur sterka áherslu og táknar afar-, feikna-, geysi- eða mjög mikið af einhverju. Vissulega getur slíkt átt vel við um sum þau viðbrögð sem sjást við ofnæmi, en engu að síður finnst undirrituðum að áherslan sé of sterk.



Lausir endar

Síðar í bréfi sínu segir Þorgeir: "Sé spurt um lausa enda, þá sýnist bráðaofnæmi gera anaphylaxis bærileg skil, ---" Því til viðbótar má segja að heitið anaphylaxis er komið úr grísku, myndað úr forskeytinu ana-, burt frá, og nafnorðinu phylaxis, vörn. Upprunalega var það sett saman til að tákna minnkaða mótstöðu eða þol tilraunadýra gagnvart endurteknum skömmtum af eitri. Löngu síðar kom í ljós að þarna hafði verið um ofnæmisviðbrögð að ræða. Nú er heitið anaphylaxis ýmist notað um bráðaofnæmislost, anaphylactic shock eða staðbundið bráðaofnæmi, local anaphylaxis, ofnæmisviðbragð af tegund I.

Hneigð merkir tilhneiging, ofnæmi merkir of mikil viðkvæmni gagnvart áhrifum og frá Þorgeiri koma lokaorðin: "--- en ofnæmishneigð, þetta ljósa orð, þýðir nákvæmlega það sem það þýðir."

Lækningabók handa sjómönnum 1967:

"Ofnæmi nefnast annarleg viðbrögð líkamans við ýmsum efnum eða hlutum, sem líkaminn annars er hlutlaus gagnvart. Ofnæmi getur verið meðfætt eða áunnið. Þeim, sem ofnæmir eru, geta hinir eðlilegustu hlutir reynzt lífshættuleg eiturefni. Menn geta haft ofnæmi fyrir alls konar matartegundum, lyfjum, jurtum, dýrum, sýklum, ryki og reyk og jafnvel fyrir hita, kulda og birtu. Alkunnugt er að börn fá oft útbrot af eggjum og fiski ("fiskibólur"). Ýmsir fá astma af hundum, köttum, hestum og heyi ("heymæði"). Við penicillin-inndælingu getur sá, sem ofnæmur er fyrir penicillini, fengið hættulegt lost. Ofnæmi birtist í ýmsum myndum, svo sem útbrotum, kláða, eksemi, astma, höfuðverk, hnerrum, niðurgangi, rennsli úr nefi og augum, stundum sem hættulegt lost, er getur valdið meðvitundarleysi og dauða."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica