Umræða fréttir

Lyfjamál 83: Notkun geðdeyfðarlyfja (N06A) á Íslandi 1992-1999

Í apríl á síÐasta ári skilaði nefnd, skipuð af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, skýrslu um notkun geðdeyfðarlyfja og þunglyndisraskanir. Formaður nefndarinnar var Tómas Helgason prófessor. Skýrslan var birt sem fylgirit með Læknablaðinu skömmu síðar og ætti þannig að hafa borist flestum læknum. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að nærri einn fimmti hluti landsmanna mun einhvern tímann veikjast af þunglyndisröskun á lífsleiðinni og á hverjum tíma þjást 5-8% fullorðinna af slíkum röskunum. Í byrjun árs 1992 var notkun geðdeyfðarlyfja 19,44 skilgreindir dagskammtar (SDS) á hverja 1000 íbúa á dag, eða með öðrum orðum þá voru tæplega 2% landsmanna að nota geðdeyfðarlyf alla daga ársins. Í lok árs 1999 er þessi tala 66,18 SDS/1000 íbúa/dag eða 6,6% þjóðarinnar.

Kostnaður hefur vaxið úr 198 m.kr. 1992 í 824 milljónum króna 1999, þar af 124 milljónir króna á síðasta ári.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica