Umræða fréttir

Þegar þátttaka í lyfjatilraunum er eini kosturinn

,,Hversu gagnlegt er að gera ráð fyrir upplýstu samþykki sjúklinga á Filippseyjum og í öðrum þróunarlöndum, þegar það eru alltaf hinir fátækustu sem taka þátt í lyfjarannsóknunum, sem hafa ekki ráð á að kaupa þau lyf sem eru seld á frjálsum markaði? Lyfjarannsóknir eru eina raunverulega leið þeirra til að fá læknismeðferð og ekki er hægt að segja að þeir hafi frelsi til að ákveða að taka ekki þátt í meðferðinni." Fatima Alvarez-Castillo, sem starfar með samtökum um heilsufarsleg félagsvísindi á Filippseyjum, vakti máls á þessu í tilefni af nýlegri rannsókn sem gerð hefur verið þar í landi. Rannsóknin var kynnt á þingi um lífsiðfræði sem haldið var í London nýverið. Á Filippseyjum er hægt að fá ókeypis sjúkdómsgreiningu en lyfjameðferð þarf að greiða fullu verði. Í samfélagi þar sem 50% íbúa lifa undir fátækramörkum en aðeins 6% búa við raunverulega læknisþjónustu er hætt við að siðferðileg vandamál af þess tagi komi upp. Alvarez-Castillo segir spillingu landlæga í heimalandi sínu og þrýstingur mikill á fólk að taka þátt í tilraunum með ný lyf. Læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn eru einnig undir þrýstingi og eiga stundum beinna hagsmuna að gæta að standa fyrir lyfjatilraunum. ,,Það sem við þurfum á að halda er að þeir sem standa fyrir tilraunum séu sjálfir undir eftirliti og geri grein fyrir markmiðum, siðfræði og hugmyndafræði sinni. Stjórnvöld þurfa líka að axla sína ábyrgð og gefa fátækasta hluta þjóðarinnar kost á að fá ókeypis lyf."



Fréttir af fimmta heimsþingi um lífsiðfræði, 26. september 2000,

Reuters; www.medscape.com

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica