Þá er gæsaveiðitímanum lokið, golfvöllurinn að færast í vetrarskrúðann og búið að draga undan hestunum. Vetrarstarfið framundan. Hver segir að ekki geti farið vel um okkur sem enn sitjum á landsbyggðinni þó við þurfum að horfa á eftir börnum okkar og vinum hverfa á höfuðborgarsvæðið? Stundum held ég að við gleymum ánægjunni við að geta stundað læknislistina, fagið sem við sjálf völdum okkur og höfum ánægju af.
Lesa meira