Umræða fréttir
  • Árni Björnsson

Tæpitungulaust. Læknafélagið, ehf.

SíÐasta hefti LæknablaÐsins barst mér í fyrri hluta mánaðarins með fréttum af aðalfundi L.Í. á Ísafirði. Af þeim fréttum fæ ég ekki betur séð en að kjörorð fundarins hafi verið, "heiðraðu skálkinn svo hann skaði þig ekki". Svo langt virðist mér hafa verið seilst til að ná "sáttum" (um hvað) í gagnagrunnsmálinu að samþykktir fundarins um það eru næsta óljósar og virðast helst samdar til þess að forðast að rýra gengi hlutabréfa í deCode genetics. Þegar við það bætist að látið er í það skína að með tillögunum séu íslenskir læknar að brjóta blað í læknisfræðilegri siðfræði er ég hræddur um að ýmsir erlendir kollegar fái ekki varist brosi, og sumir fari jafnvel að skellihlæja. En á flestu má finna skýringar, ef vel er leitað, og það kæmi ekki á óvart þótt þeirra sé að leita í eftirfarandi tilvitnun í fundarfréttirnar. "Þeir sem höfðu ekki gert upp hug sinn að fullu settu einnig svip á umræðuna. Það vakti óneitanlega athygli að einn þeirra sem til máls tóku lýsti yfir efasemdum sínum um miðlægan gagnagrunn en jafnframt því að hann ætti hagsmuna að gæta sem eigandi 1000 eininga í Íslenskri erfðagreiningu. Margir fylgdu fordæmi hans og gerðu grein fyrir efnahagslegum og/eða starfslegum tengslum sínum við Íslenska erfðagreiningu eða Urði Verðandi, Skuld".

Þetta vekur óneitanlega áleitnar spurningar en sú áleitnasta er óneitanlega spurningin um hagsmunatengsl eða hvort eigendur hlutabréfa í líftæknifyrirtækjum eða þessvegna hverskyns öðrum fyrirtækjum, sem beint eða óbeint tengjast lækningastarfi eða læknavísindum séu hæfir til að greiða atkvæði um mál þar sem hugsanlegt er að læknisfræðilegt siðfræðimat og viðskiptalegir einkahagsmunir rekist á.

Í tillögunum er líka bent á þann möguleika og gefið í skin að aðilar gagnagrunnsins geti hugsanlega fallist á, að hægt verði að láta eyða gögnum úr grunninum. Hvernig má það samræmast dulkóðuninni, sem hingað til hefur verið aðalréttlæting grunnsins? Og það eru ekki bara læknar sem hnjóta um þessa þverstæðu. Í fjölmiðlafréttum af fundinum var þess getið að varaformaður L.Í. hefði lagt fram tillögur að leiðbeiningum um félagsleg samskipti lækna við lyfjafyrirtæki og framleiðendur lækningabúnaðar. Þessar leiðbeiningar birtust ekki í fréttum af fundinum en munu væntanlegar í blaðinu sem þessi pistill birtist í, en í því mun eiga að flytja nánari fréttir af umræðum á fundinum.

Í nokkrum löndum munu slíkar reglur hafa verið lengi við lýði en á síðari árum mun víðast hafa dregið úr rausnarskap þessara aðila við lækna. Það er á allra vitorði að læknar hafa notið rausnarskapar fyrirtækjanna í mismunandi mæli, en ég leyfi mér að efast um að sá rausnarskapur hafi leitt til þess að læknar hafi frekar notað lækningadóma gjafmildu gestgjafanna ef þeir hafa vitað um aðra betri, enda skilar góður málsverður sér fljótlega útí náttúruna. Öðru máli gegnir um hlutabréf, en ekki er vitað að lyfjafyrirtæki hafi hingað til boðið læknum slík bréf fyrir viðskiptavild. Það verður fróðlegt að sjá ákvæðin um þau samskipti í fréttunum af fundinum.

Líklega hefur aldrei verið fjallað jafnmikið um allskonar viðskipti og fjármál fyrirtækja og einstaklinga í tengslum við þau eins og á síðustu árum. Ég held að fleirum en mér finnist að fjármagnið sé orðið það afl í þjóðfélaginu sem stjórnar fleiri og fleiri starfsþáttum þess og það teygir stöðugt anga sína inná fleiri svið, þar á meðal svið sem talið hefur verið sjálfsagt að þjóðfélagið annaðist til að tryggja jafnrétti þegnanna, svo sem heilbrigðis- og menntamál. Að sjálfsögðu hafa læknar smitast af fjármagnsfárinu eins og aðrir og hluti stéttarinnar er svo þungt haldinn af því að hann tjáir sig reiðubúinn að kasta fyrir róða aldagömlum siðareglum, sem hafa átt að tryggja réttindi sjúklinga, að sjálfsögðu í nafni læknavísindanna. En í stað þess að bjóða til veislu eða ferðastyrkja á ráðstefnur hefur læknum verið umbunað með hlutabréfum, á góðu verði eða kannske gefins? Hér er allt í einu kominn upp nýr þáttur í læknisfræðilegri siðfræði, sem er hagsmunatengsl við fjármálafyrirtæki, þar sem trúnaðurinn við sjúklinginn er sú skiptimynt sem læknirinn greiðir fyrirtæki til að auka arð af hlutabréfum, sem hann hefur keypt á góðu verði, eða verið greiðsla til hans fyrir veitta þjónustu.

Er ekki meiri ástæða fyrir læknastéttina og siðanefnd hennar að skoða hina nýju siðfræði og afleiðingar hennar, en að setja reglur um það hvort máltíð kostuð af lyfjafirma skuli vera tví- eða fjórréttuð eða að vínið sem borið er fram með máltíðinni skuli ekki vera eðalt árgangsvín heldur venjulegt "vin de table"?

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica