Ritstjórnargreinar

Nýtt útlit á aldamótaári

Birna Þórðardóttir

Læknablaðið heilsar lesendum sínum á nýju ári með nýtt útlit í farteskinu. Það er vart við því að búast að 85 ára gamalt og virðulegt blað ástundi kollsteypur, hvorki innihalds- né útlitslega. Unnið hefur verið að útlitsbreytingunni í alllangan tíma og reynt að vanda í hvívetna til verka. Naut Læknablaðið ráðgjafar Guðjóns Sveinbjörnssonar prentara við endurhönnun blaðsins.

Frá því fyrsta tölublað Læknablaðsins leit dagsins ljós í janúar 1915 hefur mikið vatn runnið til sjávar. Blaðið hefur átt sín ris og hnig eins og við er að búast. Það hefur meira að segja flutt úr landi tímabundið, en á árunum 1980 til 1994 var Læknablaðið prentað í Danmörku hjá útgáfufyrirtæki Danska læknafélagsins. Á þeim árum varð blaðið einnig tvöfalt að hluta til með útgáfu Fréttabréfs lækna sem kom út á árunum 1983-1994, en sameinaðist Læknablaðinu við heimflutninginn á miðju ári 1994. Frá árinu 1977 hafa af og til verið gefin út Fylgirit Læknablaðsins er varða einstök afmörkuð málefni eða atburði og eru Fylgiritin orðin alls 38, þá er ógetið ýmissa minni upplýsingabæklinga sem fylgt hafa Læknablaðinu. Útgáfan er því orðin talsverð að vöxtum.

Megintilgangur Læknablaðsins hefur ætíð verið tvíþættur: fræðilegur og félagslegur. Báðum þáttum hefur verið ætlað að styrkja stöðu læknisfræðinnar og félagslega og faglega stöðu lækna. Hröð þróun innan læknisfræðinnar hefur endurspeglast á síðum blaðsins og ekki síst ýmis siðfræðileg vandamál sem siglt hafa í kjölfar tæknilegrar og fræðilegrar framþróunar.

Vissulega hefur ýmislegt breyst í áranna rás. Forsíðu fyrsta tölublaðsins, fyrir réttum 85 árum, skrýddi tóbaksauglýsing og mátti reyndar lesa tóbaksauglýsingar í Læknablaðinu allt til ársins 1954. Undanfarin 10 ár eða frá október 1989 hafa myndir af verkum íslenskra listamanna hins vegar prýtt forsíðu blaðsins. Vonandi finnst fleirum sem mér þetta vera dæmi um breytingu til batnaðar.

Formið sem Læknablaðið hefur verið í fram til þessa var farið að þrengja mjög að innihaldi blaðsins og gaf lítið sem ekkert færi á útlitslegri tilbreytingu, en með breytingunni nú gefst færi á margbreytilegri framsetningu og frágangi en hingað til. Einstaka nýbreytni er þegar komin á koppinn svo sem umfjöllun um listamann mánaðarins og væntanlega fylgir fleira í kjölfarið. Fastir póstar öðlast meira frelsi í rými svo sem dyggir pistlahöfundar blaðsins og skal þar fremsta nefna Árna Björnsson og Jóhann Heiðar Jóhannsson, sá síðarnefndi á hér sinn 118. íðorðapistil.

Með útlitsbreytingunni sem nú lítur dagsins ljós mun Læknablaðinu vonandi takast það ætlunarverk að verða betra, aðgengilegra og fallegra blað en hingað til og er þá átt við altæka merkingu þessara orða.

Það er á hinn bóginn öllum hollt að hafa í huga að ekkert blað verður betra en þau sem í það skrifa.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica